Fólksfjölgun megi rekja til sjókvíaeldis

Ótvírætt er að sjókvíaeldið hafi haft verulega jákvæð áhrif á …
Ótvírætt er að sjókvíaeldið hafi haft verulega jákvæð áhrif á atvinnulífið á Vestfjörðum. Fólki hefur fjölgað á sunnaverðum fjörðunum. mbl.is/Helgi Bjarnason

„Veru­lega mun­ar um eldið í at­vinnu­lífi á Vest­fjörðum. Þar nam fram­leiðsla í fisk­eldi um 8% af heild­ar­fram­leiðslu árið 2019. Mestu máli skipt­ir það á suður­fjörðunum. Þar stóð byggð höll­um fæti um tíma, en nú er fólki tekið að fjölga aft­ur,“ seg­ir í ný­legri skýrslu Hag­fræðistofn­un­ar Há­skóla Íslands um áhrif lax­eld­is í opn­um sjókví­um á byggð og efna­hags­líf.

Á tíma­bil­inu 2012 til 2019 varð 25% hag­vöxt­ur á Vest­fjörðum og má gera ráð fyr­ir að um fimmt­ung­ur hans hafi komið til vegna sjókvía­eld­is, að því er seg­ir í um­fjöll­un Morg­un­blaðsins.

Benda skýrslu­höf­und­ar á að Vinnu­mála­stofn­un tel­ur að 817 manns hafi að jafnaði starfað í sveit­ar­fé­lög­un­um tveim­ur á sunn­an­verðum Vest­fjörðum að jafnaði. „Ætla má að 15-20% séu í sjókvía­eldi. Við bæt­ast störf sem tengj­ast starf­sem­inni, beint og óbeint. Eldið er meg­in­skýr­ing þess að frá upp­hafi árs 2014 og fram á haust 2023 fjölgaði íbú­um í Vest­ur­byggð og Tálkna­fjarðar­hreppi um 200, eða 16%. Fast­eigna­verð gef­ur hug­mynd um stöðu byggðanna. Frá 2014 til tíma­bils­ins frá árs­byrj­un 2022 og fram í októ­ber 2023 nær þre­faldaðist verð sér­býl­is á Pat­reks­firði, Tálknafirði og Bíldu­dal. Hús­næði sem seld­ist á ár­un­um 2022 og 2023.“

Nán­ar er fjallað um máliðí Morg­un­blaðinu í dag.

Nán­ar um málið
í Morg­un­blaðinu
Áskrif­end­ur:
Nán­ar um málið
í Morg­un­blaðinu
Áskrif­end­ur: