Fasteignaverð mun hækka á Akureyri

Stærstu tíðindi næstu viku verða þau að fasteignaverð á Akureyri mun hækka. Þetta er mat Gerðar Arinbjarnar í Blush sem einmitt opnar verslun þar í bæ á næstu dögum.

Hún er gestur Spursmála og upplýsir þar að í komandi viku muni fyrirtæki hennar opna verslun á Glerártorgi á Akureyri.

Fleiri bæjarfélög undir

Í léttum dúr gefur hún til kynna að næst verði strandhögg gert á Ísafirði, Egilsstöðum og í Vestmannaeyjum.

Gerður er gestur þáttarins ásamt Felix Bergssyni, sem þessa dagana liggur undir feldi ásamt eiginmanni sínum, Baldri Þórhallssyni, sem hvattur hefur verið til forsetaframboðs.

Þáttinn má sjá í heild sinni hér:

mbl.is