Enn bólar ekkert á eldisfrumvarpi

Til stóð að leggja frumvarp að lögum um eldis- og …
Til stóð að leggja frumvarp að lögum um eldis- og ræktunargreinar fyrir Alþingi í febrúar. Ekki er ljóst hvort það verði lagt fram fyrir páska. mbl.is/Helgi Bjarnason

Enn hef­ur ekki tek­ist að ljúka úr­vinnslu um­sagna um frum­varp til laga um lagar­eldi, eld­is- og rækt­un­ar­greina í sjó, og er enn ekki ljóst hvenær frum­varpið verður lagt fyr­ir Alþingi. Til stóð að mæla fyr­ir frum­varp­inu í fe­brú­ar.

Frum­varpið var kynnt í sam­ráðgátt 6. des­em­ber á síðasta ári og rann um­sagn­ar­frest­ur út 12. janú­ar síðastliðinn. Alls bár­ust 306 um­sagn­ir um frum­varpið og hófst úr­vinnsla þeirra 13. janú­ar. Sam­kvæmt þing­mála­skrá rík­is­stjórn­ar­inn­ar stóð til að kynna frum­varpið fyr­ir Alþingi 26. fe­brú­ar síðastliðinn, en í sam­ráðsgátt stjórn­valda sést að enn er unnið úr inn­komn­um um­sögn­um.

Katrín Jak­obs­dótt­ir for­sæt­is­ráðherra, sem fer með verk­efni mat­vælaráðherra sem er í veik­inda­leyfi, sagðist í sam­tali við Morg­un­blaðið 25. janú­ar leggja áherslu á að koma frum­varp­inu til Alþing­is, en viður­kenndi að „Það eru uppi ólík­ar skoðanir og þetta er krefj­andi verk­efni að reyna að sætta sjón­ar­mið í þessu máli“.

Að lok­inni úr­vinnslu um­sagna hugðist Katrín ætla að funda með helstu hagaðilum og kanna hvernig þær breyt­ing­ar sem gerðar hafa verið á frum­varp­inu mæl­ast fyr­ir. Ekki er þó ljóst hvort frum­varpið muni taka enn frek­ari breyt­ing­um í kjöl­far þeirra funda.

Rétt rúm­ar tvær vik­ur eru í páska­leyfi og eru því lík­ur á því að frum­varpið frest­ist fram í apríl vax­andi.

mbl.is