Hinn níræði Paul Hocheder öðlaðist óvænta frægð eftir að barnabarn hans deildi myndskeiði af honum á samfélagsmiðlinum TikTok. Myndskeiðið sýnir Hocheder á leið í skólann.
Hocheder, sem útskrifaðist úr háskóla árið 1960, vildi ólmur finna sér eitthvað skemmtilegt, lærdómsríkt og hvetjandi að gera á daginn. Úr varð að hann ákvað að skrá sig í háskólanám.
Myndskeiðið vakti mikla athygli og hefur hlotið ríflega fjórar milljónir áhorfa. Bandaríski morgunþátturinn Good Morning America deildi myndskeiðinu nýverið og ræddi við Hocheder.
„Mér líður ungum á ný,“ sagði nýneminn meðal annars þegar hann lýsti því hvernig væri að vera sestur aftur á skólabekk.
Hocheder er nemandi á fyrsta ári við Carroll Community College í Maryland þar sem hann leggur stund á sagnfræði. Hann hefur mikinn áhuga á fyrri og seinni heimsstyrjöld.
@yogabbagabba1993 My 90 year old grandfather started college today! #90andstillgoing #collegefreshman #backtoschool ♬ original sound - Mclovin