Engu svarað um áhrif lúsalyfja

Laxalús getur verið þrálátt vandamál í sjókvíaeldi og eru nokkrar …
Laxalús getur verið þrálátt vandamál í sjókvíaeldi og eru nokkrar tegundir lyfja notaðar í fóðri eða með böðun til að losna við hana. Ljósmynd/Havforskningsinstituttet

Um­hverf­is­stofn­un svar­ar því ekki hvenær standi til að skoða hver áhrif lyfja sem beitt er til að meðhöndla eld­islax gegn laxal­ús eru á líf­ríki sjáv­ar. Ekki hafa held­ur feng­ist svör við spurn­ingu um það hvort stofn­un­in telji for­svar­an­legt að lyf­in séu í notk­un á meðan áhrif þeirra á líf­ríki í þeim fjörðum þar sem þau eru notuð eru óþekkt, að því er fram kem­ur í um­fjöll­un Morg­un­blaðsins.

Í um­fjöll­un Morg­un­blaðsins í janú­ar 2022 um notk­un lyfja gegn laxal­ús í sjókvía­eldi upp­lýsti Um­hverf­is­stofn­un að hún hygðist taka til skoðunar notk­un fiskilúsa­lyfja, nán­ar til­tekið ema­mect­ins, vegna mögu­legra skaðlegra áhrifa á um­hverfið. Eru nú liðin tvö ár og hef­ur skoðunin enn ekki farið fram. Hversu lengi mál­inu verður frestað hef­ur ekki feng­ist upp­lýst.

Um mitt síðasta ár gerði blaðamaður til­raun til að fá svar við fyrr­nefnd­um spurn­ing­um og svaraði Um­hverf­is­stofn­un þá: „Vegna mik­illa anna og annarra verk­efna hef­ur því miður ekki verið lokið við þetta verk­efni. Í ljósi boðaðrar stefnu­mót­un­ar mat­vælaráðuneyt­is­ins í lagar­eldi mun stofn­un­in skoða málið heild­stætt með öðrum stofn­un­um sem koma að fisk­eld­is­mál­um.“

Stefnu­mót­un yf­ir­valda fyr­ir eld­is- og rækt­un­ar­grein­ar lauk á síðasta ári með kynn­ingu frum­varps að nýj­um heild­ar­lög­um fyr­ir lagar­eldi. Til stóð að flytja frum­varpið fyr­ir Alþingi 26. fe­brú­ar síðastliðinn sam­kvæmt þing­mála­skrá rík­is­stjórn­ar­inn­ar. Ekki er vitað hvenær megi bú­ast við því að það hljóti þing­lega meðferð.

Nán­ar er fjallað um notk­un lyfja gegn laxal­ús í Morg­un­blaðinu í dag.

Nán­ar um málið
í Morg­un­blaðinu
Áskrif­end­ur:
Nán­ar um málið
í Morg­un­blaðinu
Áskrif­end­ur: