Rekstrarleyfi endurnýjað þrátt fyrir andstöðu

Arctic Fish hefur fengið endurnýjað rekstrarleyfi vegna sjókvíaledis í Tálknafirði …
Arctic Fish hefur fengið endurnýjað rekstrarleyfi vegna sjókvíaledis í Tálknafirði og Patreksfirði. Ljósmynd/Guðlaugur J. Albertsson

Mat­væla­stofn­un hef­ur end­ur­nýjað rekstr­ar­leyfi Arctic Sea Farm ehf. (Arctic Fish) til fisk­eld­is í Pat­reks- og Tálknafirði, að því er fram kem­ur í til­kynn­ingu á vef stofn­un­ar­inn­ar. Um er að ræða leyfi fyr­ir 7.800 tonna há­marks­líf­massa af laxi.

Mat­væla­stofn­un aug­lýsti til­lögu að rekstr­ar­leyfi á vef stofn­un­ar­inn­ar 3. nóv­em­ber á síðasta ári og var frest­ur til að skila inn at­huga­semd­um til 1. des­em­ber 2023. Alls bár­ust 15 at­huga­semd­ir þar á meðal frá Birni Hembre, for­stjóra Arn­ar­lax, sem sagði leyf­istil­lög­una ekki í sam­ræmi við reglu­gerðar um fisk­eldi og benti á mik­il­vægi smit­varna.

Fleiri at­huga­semd­ir bár­ust þar sem end­ur­nýj­un­inni var mót­mælt.

Leyst með sam­starfi

Í at­huga­semd sinni vísaði Björn til þess að Mat­væla­stofn­un er gert að tryggja að minnsta fjar­lægð á milli fisk­eld­is­stöðva ótengdra aðila í sjókvía­eldi sam­kvæmt meg­in­viðmiði sé eigi styttri en 5 km miðað við út­mörk hverr­ar fisk­eld­is­stöðvar.. Hins veg­ar er eld­is­svæði Arn­ar­lax á Eyri Pat­reks­firði í 1,52 km fjar­lægð frá eld­is­svæði Arctic Fish í Kvíg­ind­is­dal. Eld­is­svæði Arn­ar­lax á Vat­neyri Pat­reks­firði er í 4,43 km fjar­lægð frá eld­is­svæði Arctic Fish í Kvíg­ind­is­dal og 3,89 km fjar­lægð frá eld­is­svæðinu í Hvanna­dal. Fjar­lægðin á milli eld­is­svæðis Arn­ar­lax í Laug­ar­dal og eld­is­svæðis Arctic Sea Farm í Hvann­dal er 2,10 km.

„Eft­ir ný­leg­an far­ald­ur sníkju­dýra meðal ann­ars í Pat­reks- og Tálknafirði mætti ætla að yf­ir­völd myndu draga fram mik­il­vægi regl­unn­ar í stað þess að víkja frá henni á suður­fjörðum Vest­fjarða. Arn­ar­lax tel­ur að sama fjar­lægðarregla eigi að gilda um allt sjókvía­eldi á Vest­fjörðum enda ástand og áhætta vegna sjúk­dóma sú sama á öll­um eld­is­svæðum á Vest­fjörðum,“ sagði í at­huga­semd­inni.

Tókst þó að finna lausn í mál­inu fyrr í þess­um mánuði og lögðu fyr­ir­tæk­in tvö fram und­ir­ritaðan sam­starfs­samn­ing um sam­eig­in­leg smit­varn­ar­svæði og sam­ræmd­ar aðgerðir þeirra til vökt­un­ar- og viðbragðsáætl­ana varðandi for­varn­ir og viðbrögð vegna fisk­sjúk­dóma og sníkju­dýra. Sam­kvæmt hon­um munu Arctic Fish og Arn­ar­lax starfa sem einn aðili á sjókví­eld­is­svæðum í Pat­reks- og Tálknafirði að öllu er lýt­ur að for­vörn­um gegn lús og smit­sjúk­dóm­um þar sem skemmri vega­lengd er á milli fé­lag­anna en 5 km.

„Í ljósi þessa tel­ur Mat­væla­stofn­un að heim­ilt sé að víkja frá meg­in viðmiði um 5 km. fjar­lægð sem getið er um í 5. tl. 18. gr. reglu­gerðar nr. 540/​2020 um fisk­eldi,“ seg­ir í grein­ar­gerð Mat­væla­stofn­un­ar vegna end­ur­nýj­un leyf­is­ins.

Mót­mæltu end­ur­nýj­un­inni

Þor­gerður M. Þor­bjarn­ar­dótt­ir, formaður Land­vernd­ar, sendi einnig inn at­huga­semd. Vakti hún at­hygli á lýs­ingu Rík­is­end­ur­skoðunar á eft­ir­liti með sjókvía­eldi sem veik­b­urða og brota­kennt. Einnig var bent á mikla lúsa­sýk­ingu í tengsl­um við eldi á svæðinu.

„Að mati Land­vernd­ar eru ekki for­send­ur til að end­ur­nýja leyfi Arctic Sea Farm á meðan ekki hafa verið gerðar veru­lega úr­bæt­ur og bætt úr þeim veik­leik­um sem út­tekt Rík­is­end­ur­skoðunar og fyrr­greind at­vik í rekstri sjókvía­eld­is hafa leitt í ljós,“ sagði í at­huga­semd sam­tak­anna.

Elv­ar Örn Friðriks­son sendi inn at­huga­semd fyr­ir hönd NASF á Íslandi þar sem bent var á að Mat­væla­stofn­un hafi farið fram á lög­reglu­rann­sókn á fyr­ir­tæk­inu sem nú væri að biðja um end­ur­nýjað leyfi.

„Slæl­eg vinnu­brögð og van­ræksla Arctic Sea Farm ehf. eru á skala sem ekki hef­ur sést áður í lax­eldi í opn­um sjókví­um hér á landi. Til að byrja með virkaði kynþroska­hindr­andi ljós­a­stýr­ing fyr­ir­tæk­is­ins ekki sem skyldi, svo að stór hluti lax­anna í kví­um fyr­ir­tæk­is­ins urðu kynþroska. Sam­kvæmt upp­lýs­ing­um frá MAST þá er ljóst að aðdrag­anda slysaslepp­ing­ar­inn­ar, sem átti sér stað í haust, má rekja til þess að fóður­tæki voru skil­in eft­ir í kví­un­um en ekki fjar­lægð líkt og á að gera. Þessi tæki nudduðust upp við neta­pok­ana sem leiddi til þess að gat myndaðist sem eld­islax­arn­ir sluppu út um.“

Var Arctic Fish sagt í at­huga­semd NASF hafa „op­in­berað van­hæfni sína til að starfa eft­ir sett­um lög­um og regl­um“. Farið var fram á að leyfi þess yrði ekki end­ur­nýjað.

Vísa til úr­bóta

Mat­væla­stofn­un „tel­ur op­in­bera lög­reglu­rann­sókn ekki koma í veg fyr­ir end­ur­nýj­un rekstr­ar­leyfi Arctic Sea Farm (Arctic Fish). Ákvörðun um af­drif máls­ins hjá lög­reglu og mögu­leg viður­lög við meint­um brot­um er í hönd­um ann­ars stjórn­valds en Mat­væla­stofn­un­ar,“ seg­ir í grein­ar­gerð stofn­un­ar­inn­ar.

Varðandi aðra liði sem nefnd­ir hafa verið gerðar at­huga­semd­ir við í tengsl­um við end­ur­nýj­un leyf­is­ins vís­ar stofn­un­in meðal ann­ars tilæ þess að gerðar hafa verið úr­bæt­ur í rekstri Arctic Fish.

„Fyr­ir ligg­ur að rekstr­ar­leyf­is­hafi hef­ur látið fara fram sann­próf­un á at­b­urði sem leiddi til þess að gat kom á kví sem leiddi til stroks eld­islaxa. Í sann­próf­un­inni er farið yfir or­sök, verk­ferla og úr­bæt­ur. Ljóst er að rekst­ar­ar­leyf­is­hafi hef­ur gert ýms­ar úr­bæt­ur á búnaði og verk­ferl­um varðandi fóðrun og neðan­sjáv­ar­eft­ir­lit sem Mat­væla­stofn­un tel­ur full­nægj­andi.“

Sjókvíar Arnarlax í Tálknafirði.
Sjókví­ar Arn­ar­lax í Tálknafirði.

Þá seg­ir í grein­ar­gerð stofn­un­ar­inn­ar að hún hafi „fengið þær upp­lýs­ing­ar frá rekst­araðila að stöðvar­stjóri hafi um tíma dval­ist er­lend­is en svo sé ekki í dag og að það hafi ekki haft áhrif á starf­semi leyf­is­hafa. Á þeim tíma sem stöðvar­stjóri er ekki á staðnum eru í hans stað fengn­ir staðgengl­ar sem sinna þeim störf­um sem krefjast viðveru og viðbragða. Mat­væla­stofn­un hef­ur ekki ástæðu til þess að draga í efa að svo sé.“

Heim­ilt er að kæra ákvörðun Mat­væla­stofn­un­ar um út­gáfu rekstr­ar­leyf­is­ins til úr­sk­urðar­nefnd­ar um­hverf­is- og auðlinda­mála og er kæru­frest­ur einn mánuður frá birt­ingu þess­ar­ar aug­lýs­ing­ar.

mbl.is