Lén Jóns Gnarr uppfært

Jón Gnarr, fyrrverandi borgarstjóri og grínisti.
Jón Gnarr, fyrrverandi borgarstjóri og grínisti. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Lénið jongn­arr.is var upp­fært í gær og blas­ir nú við snið að fram­boðssíðu er farið er inn á vefsíðuna. Í lýs­ingu síðunn­ar seg­ir „Kjós­um Jón - Jón Gn­arr 2024“.

Lénið var stofnað 19. sept­em­ber árið 2022 en sam­kvæmt skrán­ing­ar­skír­teini þess á vefsíðu In­ter­nets á Íslandi hf. (ISNIC) var það upp­fært í gær, 31. mars. 

Í lýsingu vefsíðunnar segir „Kjósum Jón - Jón Gnarr 2024“.
Í lýs­ingu vefsíðunn­ar seg­ir „Kjós­um Jón - Jón Gn­arr 2024“. Skjá­skot

Rétt­hafi vefsíðunn­ar er Jón Gn­arr slf. og er hún skráð á heim­il­is­fang Jóns í Reykja­vík. 

Á laug­ar­dag sagði Jón að hann myndi greina frá ákvörðun sinni um það hvort að hann bjóði sig fram til for­seta á þriðju­dag­inn.

Í morg­un greindu fjöl­miðlar frá því að lénið katr­injak­obs.is hefði verið stofnað. 

Upp­fært 18:20:

Vefsíðan hef­ur verið gerð óvirk. 

mbl.is