Fjölga veiðidögum á grásleppu í 40

Grásleppubátunum verður heimilt að vera á veiðum í 40 dga …
Grásleppubátunum verður heimilt að vera á veiðum í 40 dga í stað 25. mbl.is/Hafþór

Veiðidög­um á grálseppu hef­ur verið fjölgað úr 25 í 40 sam­kvæmt reglu­gerð mat­vælaráðuenyt­is­ins sem gef­in var út síðastliðinn föstu­dag.

Fiski­stofa mun því fjölga veiðidög­um um 15 hjá öll­um þeim veiðileyf­is­höf­um sem nú eru á veiðum og hjá þeim sem eiga eft­ir að hefja veiðar, að því er fram kem­ur í til­kynnignu á vef stofn­un­ar­inn­ar.

Heim­ilt er að landa 4.030 tonn­um á yf­ir­stand­andi vertíð en síðustu ár hef­ur ekki tek­ist að veiða all­an þann afala sem heim­ild er fyr­ir. Var á síðasta ári veiðidög­um fjölgað í tvígang.

Í gær feng­ust 142 krón­ur á kíló fyr­ir grá­slepp­una á fisk­mörkuðum lands­ins, en hef­ur verið mjög sveiflu­kennt.

mbl.is