Lagareldismálið fyrst á dagskrá

Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir er nýr matvælaráðherra.
Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir er nýr matvælaráðherra. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Bjarkey Ol­sen Gunn­ars­dótt­ir, nýr sjáv­ar­út­vegs- og mat­vælaráðherra, seg­ir embættið leggj­ast vel í sig. Hún kveðst spennt fyr­ir verk­efn­inu og hlakk­ar til að læra meira.

„Kynn­ast nýju fólki, kynn­ast nýj­um verk­efn­um og þó ég þekki nú sum þeirra bet­ur en önn­ur þá er auðvitað eins og æv­in­lega margt sem að ég held að al­menn­ing­ur sé ekk­ert endi­lega að hugsa um vegna þess að það eru auðvitað stóru mál­in sem taka sviðið en ekki mörg önn­ur sem þarf þó að sinna,“ seg­ir Bjarkey og nefn­ir sem dæmi land­græðslu og skóg­rækt.

Bjarkey Olsen tekur við lyklunum af Svandísi Svavarsdóttur.
Bjarkey Ol­sen tek­ur við lykl­un­um af Svandísi Svavars­dótt­ur. mbl.is/​Eggert Jó­hann­es­son

Hlakk­ar til góðrar sam­vinnu

Bjarkey tók í dag við lykl­un­um að mat­vælaráðuneyt­inu af for­vera sín­um Svandísi Svavars­dótt­ur sem tek­ur við embætti innviðaráðherra af Sig­urði Inga Jó­hanns­syni.

Spurð hvaða verk­efni séu fyrst á dag­skrá nýs ráðherra nefn­ir Bjarkey lagar­eld­is­málið sem bíði fyrstu umræðu á þing­inu.

„Ég hyggst fylgja því vel úr hlaði og hlakka til góðrar sam­vinnu við þingið um það.“

mbl.is