Bátur Arnarlax verður fyrsti sinnar tegundar

Nýr bátur Arnarlax verður tengiltvinnbátur sem gert er ráð fyrir …
Nýr bátur Arnarlax verður tengiltvinnbátur sem gert er ráð fyrir að lækki kolefnisspor rekstrarins til muna. Myndin er af svipuðum bát, en bátur Arnarlax verður heilum metri lengri og hálfum metri breiðari. Ljósmynd/Moen Marin

Arn­ar­lax gekk á dög­un­um frá samn­ingi við Moen Mar­in um smíði á nýj­um þjón­ustu­bát. Tví­byttn­an verður fyrsti ten­gilt­vin­bát­ur­inn sem sinn­ir fisk­eldi hér á landi og verður næg­um raf­hlöðum til að geta vera rek­in los­un­ar­laust.

Mark­mið Arn­ar­lax með fjár­fest­ingu í þess­ari lausn er að draga veru­lega úr kol­efn­is­spori rekst­urs­ins, að því er fram kem­ur í um­fjöll­un norsku eld­is­frétta­veit­unn­ar iLaks.

„Sem eitt af stærri fisk­eld­is­fyr­ir­tækj­um á Íslandi hyggst Arn­ar­lax vera leiðandi á sviði um­hverf­i­s­vænni orku­lausna,“ seg­ir Björn Hembre, fram­kvæmda­stjóri Arn­ar­lax. Hann seg­ir fjár­fest­ing­una vera lið í að ná mik­il­væg­um mark­miðum fyr­ir­tæk­is­ins um gott vinnu­um­hverfi, skil­virk­um og ör­ugg­um rekstri og minnk­andi kol­efn­is­spori.

Björn Hembre.
Björn Hembre. mbl.is/​Hari

Moen Mar­in er stærsti fram­leiðandi þjón­ustu­báta fyr­ir fisk­eld­isiðnaðinn á heimsvísu og má finna báta þeirra í öll­um ríkj­um þar sem sjókvía­eldi á lax fer fram. Á und­an­förn­um ára­tug hef­ur Moen Mar­in fram­leitt um 300 báta fyr­ir fisk­eld­is­grein­ina á heimsvísu, þar af eru 85 bát­ar ten­gilt­vinn­bát­ar með öfl­ugt raf­hlöðukerfi.

„Samn­ing­ur­inn um fyrsta ten­gilt­vinn­bát­inn á Íslandi mark­ar mik­il tíma­mót fyr­ir okk­ur og tíma­mót fyr­ir fisk­eld­isiðnaðinn á Íslandi. Arn­ar­lax er mik­il­væg­ur og góður viðskipta­vin­ur okk­ar og við þökk­um það traust sem þeir bera til okk­ar,“ seg­ur Miv­hael Kristian­sen, sölu­stjóri Moen Mar­in.

mbl.is