Gagnrýna aðferðir við áhættumat

Sé það svo að stærð villta laxastofnsins sé ofmetin í …
Sé það svo að stærð villta laxastofnsins sé ofmetin í áhættumati erfðablöndunar má gera ráð fyrir að endurskoðun leiði til samdráttar í hámarkslífmassa. mbl.is/Þorgeir

„Veru­lega er van­metið hversu oft og hve mikið er farið yfir ágengn­ismörk í ein­stök­um ám,“ seg­ir í álits­gerð sem unn­in er af Arev töl­fræði fyr­ir Lands­sam­band veiðifé­laga. Var fyr­ir­tæk­inu gert að fara yfir þann þátt áhættumats Haf­rann­sókna­stofn­un­ar sem lýt­ur að áhættumats­líkani fyr­ir ágengni eld­islax í laxveiðiám á Íslandi, að því er fram kem­ur í um­fjöll­un sem birt var í síðasta blaði 200 mílna.

Vert er að geta þess að end­ur­skoðun áhættumats­ins fer nú fram, en Haf­rann­sókna­stofn­un óskaði eft­ir því í októ­ber síðastliðnum að Sam­ráðsnefnd um fisk­eldi myndi fresta um­fjöll­un um áhættumat erfðablönd­un­ar þar þtil lokið væri við end­ur­skoðun­ina. Var ákvörðunin tek­in í kjöl­far slysaslepp­ingu fjölda eld­islaxa úr sjókví í Pat­reks­firði.

Í álits­gerðinni sem unn­in var fyr­ir Lands­sam­bandið er bent á fleiri þætti sem talið er að bet­ur megi fara og seg­ir að við mat á ágengn­ismörk­um sé oft stuðst við er­lend­ar hlut­fallstöl­ur. „Flest­ar eiga þær sér ein­hverja stoð í ritrýnd­um fræðigrein­um, en eru þó oft­ast staðfærðar. Mikið vant­ar upp á að sú staðfærsla sé í sam­ræmi við góða töl­fræðivenju.“

Þá sé ekki tekið til­lit til þess að villt­um fisk­um hafi verið að fækka í flest­um ám und­an­far­in ár við mat Haf­rann­sókna­stofn­un­ar á fjölda þeirra. Er notk­un tíu ára meðaltals við mat á fjölda villtra laxa í ám sagt valda „töl­fræðilega mark­tæku of­mati“ og er lagt til að stuðst verði frek­ar við fimm ára meðaltal.

„Þetta er ágæt­is ábend­ing sem við skoðum,“ svar­ar Ragn­ar Jó­hanns­son, rann­sókna­stjóri á ferskvatns- og eld­is­sviði Haf­rann­sókna­stofn­un­ar, spurður um þá gagn­rýni sem snýr að notk­un tíu ára meðaltals.

Um­fjöll­un­ina má lesa í heild sinni í síðasta blaði 200 mílna.

Nán­ar um málið
í Morg­un­blaðinu
Áskrif­end­ur:
Nán­ar um málið
í Morg­un­blaðinu
Áskrif­end­ur: