Vísar gagnrýni á togararall á bug

Togararall hefur farið fram tvisvar á ári frá 1985.
Togararall hefur farið fram tvisvar á ári frá 1985. Ljósmynd/Hafrannsóknarstofnun/Svanhildur Egilsdóttir

„Það er eins fjarri og hugs­ast get­ur að við séum bara að nota tog­ar­arallið við mat á stofn­stærð botn­fiska,“ seg­ir Þor­steinn Sig­urðsson for­stjóri Haf­rann­sókna­stofn­un­ar í sam­tali við Morg­un­blaðið, en hann bregst þannig við grein Guðlaugs Jóns­son­ar sjó­manns sem birt­ist í blaðinu í gær og vís­ar gagn­rýni hans al­ger­lega á bug.

Þar ve­feng­ir Guðlaug­ur veiðiráðgjöf Haf­rann­sókna­stofn­un­ar í botn­fiski sem hann seg­ir byggj­ast al­farið á niður­stöðum tog­ar­aralla sem fram fara ár­lega. Hann bend­ir m.a. á að Norðmenn telji botntroll eitt og sér ekki not­hæft til slíkra mæl­inga.

Sömu aðferðum beitt

Þor­steinn seg­ir að ná­kvæm­lega sömu aðferðum sé beitt hér við land og Norðmenn gera, eins og um 90% þeirra sem meta stofn­stærð botn­fiska í heims­höf­un­um geri. Hann seg­ir að not­ast sé við niður­stöður úr tveim­ur röll­um og einnig stuðst við gögn úr veiðum skipa. Þess­ar upp­lýs­ing­ar séu metn­ar sam­an.

„Það að eitt­hvað af fisk­in­um fari und­ir fótreipið og bobb­ing­ana er ekki stóra málið, held­ur erum við að nota sama veiðarfærið í ár og við notuðum fyr­ir 40 árum,“ seg­ir hann og vís­ar til þess að farið hef­ur verið í tog­araröll frá ár­inu 1985.

Hægt er að nálg­ast um­fjöll­un­ina í heild sinni í Morg­un­blaðinu í dag.

Nán­ar um málið
í Morg­un­blaðinu
Áskrif­end­ur:
Nán­ar um málið
í Morg­un­blaðinu
Áskrif­end­ur: