„Margt hefur nú ekki beinlínis verið til fyrirmyndar“

Svandís Svavarsdóttir, innviðaráðherra og fyrrverandi matvælaráðherra.
Svandís Svavarsdóttir, innviðaráðherra og fyrrverandi matvælaráðherra. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Svandís Svavars­dótt­ir, innviðaráðherra og fyrr­ver­andi mat­vælaráðherra, seg­ir al­gjör­an sam­hljóm vera um að kerfið í kring­um lagar­eldi hafa verið óskýrt. Þar hafi verið ómark­viss­ir ferl­ar sem varða leyf­is­veit­ingu og stjórn­sýsl­an ekki verið til fyr­ir­mynd­ar.

Þetta kom fram í máli henn­ar þegar hún svaraði óund­ir­bún­um fyr­ir­spurn­um á Alþingi í dag.

Sigl­inga­ör­yggi þurft að víkja fyr­ir sjókví­um

Þór­hild­ur Sunna Ævars­dótt­ir, þing­kona Pírata, spurði Svandísi út í leyf­is­veit­ing­ar vegna sjókvía­eld­is. Sagði hún að sigl­inga­ör­yggi hefði mátt víkja fyr­ir kví­un­um þrátt fyr­ir að Vega­gerðin, Land­helg­is­gæsl­an og Sam­göngu­stofa beri ábyrgð á sigl­inga­ör­yggi, en Þór­hild­ur sagði það ör­yggi hafa þurft að víkja þegar leyft var að setja kví­ar á stöðum sem skyggja á ljós­geisla frá vit­um.

Rifjaði Þór­hild­ur einnig upp slysaslepp­ingu í fyrra og sagði ljóst að áhættumat Haf­rann­sókna­stofn­un­ar vegna erfðablönd­un­ar hafi ekki verið full­nægj­andi og nýtt mat þyrfti að gera.

Sagði hún þessi dæmi sýna sof­anda­hátt og van­hæfi stjórn­sýsl­unn­ar, en að af­sök­un­in væri jafn­vel að verið væri að bjarga brot­hætt­um byggðum og þá væri af­slátt­ur af lög­um og regl­um gef­inn svo fórna mætti hags­mun­um nátt­úru og framtíðarkyn­slóða.

Spurði hún ráðherra hvort strandsvæðaskipu­lag væri ekki í upp­námi þar sem skipu­lag kví­anna stand­ist ekki sigl­inga­lög, vita­lög, fisk­eld­is­lög, fjar­skipta­lög, bygg­ing­ar­lög eða lög um um­hverf­is­mat.

Þórhildur Sunna Ævarsdóttir, þingmaður Pírata.
Þór­hild­ur Sunna Ævars­dótt­ir, þingmaður Pírata. mbl.is/Á​rni Sæ­berg

Sam­hljóm­ur um óskýrt kerfi og ómark­vissa ferla

„Það hef­ur sann­ar­lega verið svo, eins og kem­ur fram í fyr­ir­spurn hátt­virts þing­manns, að margt hef­ur nú ekki bein­lín­is verið til fyr­ir­mynd­ar í ut­an­um­haldi lagar­eld­is við Ísland,“ svaraði Svandís og sagði að ráðist hafi verið í út­tekt bæði Rík­is­end­ur­skoðunar og Bost­on Consulting Group. Þar hafi verið óskað eft­ir mögu­legri framtíðar­sýn fyr­ir lagar­eldi á öll­um sviðum.

„Það má eig­in­lega segja að það hafi verið al­ger sam­hljóm­ur í þeirri vinnu sem þarna var innt af hendi, þ.e. að kerfið væri óskýrt, það væru ómark­viss­ir ferl­ar að því er varðar leyf­is­veit­ing­ar, stjórn­sýsl­an væri ekki til fyr­ir­mynd­ar o.s.frv., sem varð allt sam­an til þess að rétt þótti að fara að ábend­ing­um Rík­is­end­ur­skoðunar og Bost­on Consulting Group í því að leggja grunn að nýrri heild­ar­lög­gjöf um lagar­eldi,“ sagði Svandís, en slíkt frum­varp er vænt­an­legt fyr­ir þingið í vik­unni.

Fyrr í fyr­ir­spurn­ar­tím­an­um hafði Kristrún Frosta­dótt­ir, formaður Sam­fylk­ing­ar­inn­ar, gagn­rýnt frum­varpið og sagði það gefa eld­is­fyr­ir­tækj­un­um auðlind­ir þjóðar­inn­ar.

Sagði Svandís mikið um­hugs­un­ar­efni hvernig skil­virk­ast væri að tryggja þetta leyf­is­veit­inga­ferli þannig að það væri í góðu jafn­vægi við bæði sam­fé­lag og um­hverfi. Hún hafnaði því hins veg­ar að um væri að ræða birt­ing­ar­mynd hug­mynda­leys­is í byggðamál­um eins og Þór­hild­ur hafði haldið fram.

mbl.is