Helga komin með lágmarksfjölda undirskrifta

Helga Þórisdóttir forsetaframbjóðandi.
Helga Þórisdóttir forsetaframbjóðandi. Ljósmynd/Aðsend

Helga Þóris­dótt­ir hef­ur safnað til­skild­um fjölda meðmæla sem þarf til að bjóða sig fram í embætti for­seta Íslands.

Fram­boðsfrest­ur til embætt­is­ins renn­ur út klukk­an 12 á há­degi á morg­un. Ber fram­bjóðend­um þá að skila list­um með meðmæl­um frá 1.500-3.000 kjós­end­um.

„Með sól í hjarta til­kynni ég hér með að ég hef náð und­ir­skrift­un­um í meðmæla­söfn­un fyr­ir for­setafram­boð. Þessu fagna ég á þess­um fal­lega degi, sum­ar­deg­in­um fyrsta, og vil nota tæki­færið og óska lands­mönn­um öll­um gleðilegs sum­ars,“ er haft eft­ir Helgu í til­kynn­ingu.

Helgu hlakk­ar til að geta kynnt sig enn bet­ur fyr­ir land­an­um og stefn­ir á að fara á hina ýmsu staði á landsvísu til að kynna sig, að því er fram kem­ur í til­kynn­ing­unni.

mbl.is

Bloggað um frétt­ina