Björk varar við frumvarpi ríkisstjórnarinnar

„Vilj­um við gefa auðmönn­um firðina okk­ar?“ spyr Björk.
„Vilj­um við gefa auðmönn­um firðina okk­ar?“ spyr Björk. Ljósmynd/Aðsend

Söng­kon­an Björk Guðmunds­dótt­ir var­ar við um­deildu frum­varpi um lagar­eldi og hvet­ur fólk til að setja nafn sitt á und­ir­skriftal­ista Steinn­unn­ar Ólínu Þor­steins­dótt­ur til að skora á Alþingi að hafna frum­varp­inu.

Bjarkey Ol­sen Gunn­ars­dótt­ir mat­vælaráðherra hef­ur lagt fram frum­varp sem í felst að gera rekstr­ar­leyf­i til lagar­eld­is ótíma­bund­in. Hingað til hafa leyf­in verið tíma­bund­in til 16 ára í senn með mögu­leika á fram­leng­ingu.

Björk birti í dag færslu á sam­fé­lags­miðlin­um X, áður Twitter, og einnig á In­sta­gram þar sem hún spyr: „Vilj­um við gefa auðmönn­um firðina okk­ar?“

1.500 skrifað und­ir með Stein­unni Ólínu

„Mat­vælaráðherra mælti á Alþingi í vik­unni fyr­ir nýju frum­varpi um lagar­eldi þar sem gert er ráð fyr­ir að rekstr­ar­leyfi lax­eld­is­fyr­ir­tækja í ís­lensk­um fjörðum verði ótíma­bundið,“ skrif­ar Björk.

„Mark­miðið er sagt eiga að bæta lag­aramma um fisk­eldi með auk­inni áherslu á sjálf­bærni og um­hverf­is­vernd. Jón Kal­dal, talsmaður Íslenska nátt­úru­vernd­ar­sjóðsins, seg­ir hins veg­ar að frum­varpið vinni gegn þess­um hags­mun­um,“ bæt­ir hún við og hlekkj­ar und­ir­skrifta­söfn­un við færsl­una.

Steinunn Ólína Þorsteinsdóttir er ábyrgðarmaður söfnunarinnar.
Stein­unn Ólína Þor­steins­dótt­ir er ábyrgðarmaður söfn­un­ar­inn­ar. mbl.is/​Eggert Jó­hann­es­son

Rúm­lega 1.500 manns hafa skrifað und­ir. Ábyrgðarmaður und­ir­skrift­ar­söfn­un­ar­inn­ar er Stein­unn Ólína Þor­steins­dótt­ir for­setafram­bjóðandi, sem hef­ur gagn­rýnt frum­varpið og Katrínu Jak­obs­dótt­ur, mót­fram­bjóðanda sinn.

Við und­ir­skrifta­söfn­un­ina er skorað á Alþingi að hafna frum­varp­inu, sem „heim­il­ar meng­andi iðnaðarfram­leiðslu með sjókví­eldi á viðkvæm­ustu svæðum við strend­ur Íslands und­ir litlu eft­ir­liti og hef­ur hags­muni leyf­is­hafa í fyr­ir­rúmi á kostnað al­manna­hags­muna og nátt­úru lands­ins.“

Björk hef­ur um hríð mælt gegn sjókvía­eldi. Í nóv­em­ber gaf hún út lagið Oral ásamt spænsku popp­stjörn­unni Rosal­íu, sem fjall­ar ein­mitt um fisk­eldi.

mbl.is