Stjórn fiskeldisjóðs úthlutaði 437,2 milljónum króna til sextán verkefna í sjö sveitarfélögum í síðustu viku. Þar var úthlutað 191,5 milljón til verkefna á Austurlandi og er það fjórföld upphæð sem fékkst á síðasta ári.
Verkefni á Vestfjörðum hlutu 245,7 milljónir, en það er rúmlega 22% meira en úthæutað var á því svæði á síðasta ári.
Í tilkynningu á vef stjórnarráðsins kemur fram að sjóðnum barst 29 umsóknir frá átta sveitarfélögum, samtals að fjárhæð rúmlega 1,5 milljarður króna, sem er meira en þrefalt hærri fjárhæð en var til úthlutunar.
Sjóðurinn er fjármagnaður með gjöldum á sjókvíaeldi og er honum ætlað að veita sveitarfélögum styrki til uppbyggingar innviða, þar sem fiskeldi í sjókvíum er stundað, og styrkja þar með samfélög og stoðir atvinnulífs á þeim svæðum.
Fyrsta úthlutun sjóðsins átti sér stað 2021 og voru þá 105 milljónir í boði, en sjóðurinn hefur stækkað í takti við aukningu í framleiðslu fiskeldis og aukna álagningu á eldi hér á landi.