Mikilvægt að endurskoða leyfi til lagareldis

Guðmundur Ingi Guðbrandsson, félags- og vinnumarkaðsráðherra.
Guðmundur Ingi Guðbrandsson, félags- og vinnumarkaðsráðherra. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Guðmund­ur Ingi Guðbrands­son, fé­lags- og vinnu­markaðsráðherra, seg­ir mik­il­vægt að skoða hvort hægt sé að tryggja sömu um­hver­fis­kröf­ur með tíma­bundnu leyfi til lagar­eld­is.

Þetta var meðal þess sem fram kom í svari Guðmund­ar við spurn­ing­um Jó­hanns Páls Jó­hanns­son­ar, þing­manns Sam­fylk­ing­ar í óund­ir­bún­um fyr­ir­spurn­ar­tíma á Alþingi fyrr í dag. 

Spurði Jó­hann ráðherr­ann hvort hann væri hlynnt­ur því að fyr­ir­tækj­um væri veitt var­an­leg yf­ir­ráð yfir sam­eig­in­leg­um auðlind­um Íslend­inga. Hvers vegna málið kæmi fyr­ir Alþingi í þess­ari mynd og hvort um væri að ræða sér­stakt áherslu­mál Vinstri grænna, enda farið um hend­ur þriggja ráðherra Vinstri grænna. 

Und­ir­strik­ar mik­il­vægi þess að koma bönd­um á sjókví­eldi 

Áður en Guðmund­ur svaraði spurn­ing­um Jó­hanns sagði hann sjókví­eldi hafa vaxið allt of hratt við Ísland án þess að lag­arammi eða eft­ir­lit fylgdi með og því und­ir­strikaði hann mik­il­vægi þess að bönd­um yrði komið á sjókví­eldi í land­inu.

Þá sagði hann í frum­varpi til laga um lagar­eldi, sem unnið hef­ur verið und­ir stjórn ráðherra Vinstri grænna, væru tek­in mörg fram­fara skref. Sem dæmi væri verið að lög­festa friðun­ar­svæði gegn sjókví­eldi, verið að koma á sér­stök­um smit- og varn­ar­svæðum, það væri verið að beita sekt­um vegna storks og margt fleira. 

Auðveld­ara að beita ströngustu viður­lög­um ef leyfið er ótíma­bundið

Hvað spurn­ing­ar Jó­hanns varðar svaraði Guðmund­ur því til að Bjarkey Ol­sen Gunn­ars­dótt­ir mat­vælaráðherra hefði lýsti því yfir að hún væri til­bú­in til að skoða það með nefnd­inni að gera breyt­ing­ar á frum­varp­inu. 

Þá sagðist hann skilja það sem svo að við smíði frum­varps­ins hefði mat­vælaráðuneytið tekið fyr­ir sjón­ar­mið bæði um tíma­bund­in og ótíma­bund­in leyfi. Það hafi komið til ít­ar­legr­ar skoðunar og sér­stak­lega í sam­hengi við mögu­leik­ann á því að geta beitt sem ströngust­um viður­lög­um við brot­um á lög­un­um, þar með talið leyf­is­svipt­ingu. Það sé auðveld­ara ef um ótíma­bund­in leyfi sé að ræða. 

Skil­ur áhyggj­ur þing­manna 

„Þetta er lög­fræði og ráðuneytið ákvað að fara eft­ir þess­um ráðlegg­ing­um,“ sagði Guðmund­ur áður en hann kvaðst skilja áhyggj­ur Jó­hanns og margra annarra þing­manna enda hefði hann verið fylgj­andi tíma­bundnu leyfi. 

Því sagði Guðmund­ur mik­il­vægt að skoða það vand­lega hvort hægt væri að tryggja sömu um­hver­fis­kröf­ur með tíma­bundnu leiðinni eins og talið er að hægt sé að gera með þeirri ótíma­bundnu. 

„Með fullri virðingu þá er þetta auðvitað al­ger hundalógík að halda því fram að ótíma­bund­inn leyfi séu ein­hvers kon­ar for­senda þess að það sé með góðu móti hægt að beita viður­lög­um. Að það sé með ein­hverj­um hætti íþyngj­andi í sjálfu sér,“ sagði Jó­hann því næst á sama tíma og hann fagnaði því að Guðmund­ur Ingi væri reiðubú­inn að skoða það að leyf­in yrðu frek­ar tíma­bund­in. 

mbl.is