Fellsfjara á Breiðamerkursandi, eða Diamond Beach eins og erlendir ferðamenn kalla hana gjarnan, hefur vakið mikla athygli að undanförnu og var á dögunum valin ein besta strönd heims.
Á ári hverju er gefinn út listi yfir 50 bestu strendur heims, en listinn er samstarfsverkefni milli þúsund fremstu ferðasérfræðinga og fagfólks í heiminum. Í ár prýðir íslensk strönd listann, en það er Fellsfjara sem hafnaði í 41. sæti listans.
„Diamond Beach á Íslandi býður upp á strandarupplifun sem er ólík öllum öðrum í heiminum. Ströndin er nefnd eftir ísjökum sem líkjast ótrúlegum demöntum á víð og dreid um svartan eldfjallasandinn og er staðsett nálægt Jökulsárlóni,“ er meðal annars skrifað í umsögn um ströndina.
Þetta er ekki í fyrsta sinn sem Fellsfjara ratar inn á erlenda miðla, en árið 2021 var ströndin í 11. sæti á lista Tripadvisor yfir bestu strendur Evrópu. Þá prýddi ströndin nýlega lista hjá ferðatímaritinu Condé Nast Traveller yfir fegurstu staði heims til að bera upp bónorð.