Spursmál: Jón Gnarr svarar krefjandi spurningum

Frosti Logason, Jón Gnarr og Sanna Magdalena Mörtudóttir eru gestir …
Frosti Logason, Jón Gnarr og Sanna Magdalena Mörtudóttir eru gestir Stefáns Einars Stefánssonar í Spursmálum. Samsett mynd

Jón Gn­arr for­setafram­bjóðandi sat fyr­ir svör­um í nýj­asta þætti Spurs­mála und­ir stjórn Stef­áns Ein­ars Stef­áns­son­ar.

Þátt­ur­inn var sýnd­ur hér á mbl.is fyrr í dag en upp­tak­an er öll­um aðgengi­leg og má nálg­ast í spil­ar­an­um hér að neðan, á Spotify og Youtu­be.

Kraf­inn svara

Í þætt­in­um var Jóni gert að svara krefj­andi spurn­ing­um er varða fortíð hans og bak­grunns sem einn vin­sæl­asti grín­isti lands­ins í sam­hengi við fram­boð hans til embætt­is for­seta Íslands.

Einnig var knúið á um svör hvers kon­ar hug­sjón­ir Jón hef­ur á for­seta­embætt­inu og með hvaða hætti hann kem­ur til með að beita sér í því verði hann kjör­inn.

Farið yfir fjöl­breytta frétta­viku

Fjöl­breytt frétta­vika er senn á enda. Fjöl­miðlamaður­inn Frosti Loga­son og Sanna Magda­lena Mörtu­dótt­ir borg­ar­full­trúi Sósí­al­ista­flokks­ins mættu í settið til að fara yfir stærstu frétta­mál­in sem upp komu í vik­unni.

Ber þar helst að nefna Kveiks hneykslið svo­kallaða þegar upp kom að frétta­skýr­ing Maríu Sigrún­ar Hilm­ars­dótt­ur fjöl­miðlakonu var tek­in af dag­skrá. Í frétta­skýr­ing­unni var fjallað ít­ar­lega um um­deilda samn­inga borg­ar­inn­ar við olíu­fé­lög­in um bens­ín­stöðvalóðir inn­an borg­ar­lands­ins.

Þá kom ákvörðun pen­inga­stefnu­nefnd­ar mörg­um í opna skjöldu á dög­un­um með ákvörðun sinni um að halda stýri­vöxt­um óbreytt­um. Vill svo til að al­menn­ing­ur er hætt­ur að botna í stöðunni.

Þetta og meira til var til umræðu í Spurs­mál­um í dag.

Fylgstu með upp­lýs­andi og líf­legri umræðu í Spurs­mál­um hér á mbl.is alla föstu­daga klukk­an 14.

mbl.is