Hafa gert tillögu að rekstrarleyfi Laxeyjar

Matvælastofnun hefur gert tillögu um rekstrarleyfi fyrir sjö þúsund tonna …
Matvælastofnun hefur gert tillögu um rekstrarleyfi fyrir sjö þúsund tonna eldisstöð Laxeyjar í Viðlagafjöru. Mbl.is/Óskar Pétur Friðriksson

Mat­væla­stofn­un hef­ur unnið til­lögu að rekstr­ar­leyfi fyr­ir land­eld­is­stöð Lax­eyj­ar hf. í Viðlaga­fjöru í Vest­manna­eyj­um. Leyfið heim­il­ar 7.000 tonna há­marks­líf­massa vegna mat­fisk­eld­is á frjó­um laxi og regn­bogasil­ungi.

Þetta má lesa í til­kynn­ingu á vef Mat­væla­stofn­un­ar.

Fram kem­ur af gögn­um máls­ins að áætlan­ir gera ráð fyr­ir jarðsjáv­ar­töku og hún verði um 4.500 l/​s fyr­ir fyrsta áfanga og um 10.600 l/​s fyr­ir full­an rekst­ur. Til að ná þessu vatns­magni þarf 27 bor­hol­ur, en auk þess er áætlað að 250 metra niðurgraf­in rifuð lögn verður lögð meðfram strand­lengj­unni sem virki eins og lá­rétt­ur brunn­ur.

Miðar vatnstak­an að því að há­marka hita­stig þess sjáv­ar sem sé í boði fyr­ir eld­is­stöðina með því að nýta hæyj­an yf­ir­borðssjó að sumri.

Fyr­ir­liggj­andi gögn benda til þess að al­mennt séu góðar nátt­úru­leg­ar aðstæður til jarðsjávar­öfl­un­ar við Viðlaga­fjöru og tel­ur Lax­ey að um­hverf­isáhrif vegna vatnstöku á grunn­vatns- og jarðsjáv­ar­straum verði staðbund­in og óveru­leg.

Í áliti sínu hvet­ur Skipu­lags­stofn­un til þess að staðaið verði við áform Lax­eyj­ar um að byggja rekst­ur­inn upp í áföng­um „til þess að unnt sé að meta bet­ur áhrif grunn­vatns­vinnsl­unn­ar með hliðsjón af vökt­un. Skipu­lags­stofn­un tel­ur að í nýt­ing­ar­leyfi þurfi að setja skil­yrði um áfanga­skipt­ingu sem og vökt­un og viðbrögð ef vökt­un leiðir í ljós víðtæk­ari áhrif grunn­vatns­vinnslu en gert hafi verið ráð fyr­ir.“

2.500 tonn af úr­gangi

Gert er ráð fyr­ir að um 2.500 tonn af úr­gangi falli til á ári þegar eld­is­stöðin er í full­um rekstri, en frá­rennsli verður hreinsað. Fyrst mun frá­rennslið frá eldisker­um verða gróf­hreinsað með trimlusí­um og síðan fer það í gegn­um hreins­istöð áður en það fer í steypta fortjörn þar sem á sér stað botn­fell­ing svifagna sem verði hreinsaðar eft­ir þörf­um og sett­ar í mykjutank.

Loka­skref hreins­un­ar­inn­ar er svo­kölluð viðtaka­tjörn þar sem frá­veitu­vatn sitri út til viðtaka. Einnig sé til skoðunar að frá­veitu­vatni úr eldiskerj­um verði veitt til sjáv­ar um stokk neðan við eld­is­stöðina eft­ir gróf­hreins­un með tromlusí­um.

Þá tel­ur Skipu­lags­stofn­un áhrif frá­rennsl­is á sjó og líf­ríki fjöru ekki lík­leg til að verða veru­leg. „Magn frá­veitu­vatns verður hlut­falls­lega lítið miðað við rúm­mál þess viðtaka sem um ræðir, sem í þessu til­felli er straumþungt haf og því má bú­ast við að þynn­ing verði mik­il.“

Ekki er gert ráð fyrir verulegum áhrifum af völdum frárennslis …
Ekki er gert ráð fyr­ir veru­leg­um áhrif­um af völd­um frá­rennsl­is frá eld­is­stöð Lax­eyj­ar.

Hætta á tíma­bund­inni lykt­ar­meng­un

Lax­ey stefn­ir að því að koma í veg fyr­ir lykt­ar­meng­un frá starf­sem­inni með því að viðhafa reglu­lega hreins­un á dauðfisk, auk þess sem úr­gangi frá slátrun og laxa­mykja verða flutt og geymd í lokuðum tönk­um. Þá eru uppi áform um að nota líf­ræn­an úr­gang eld­is­ins til upp­græðslu í sam­stafi við Land­græðsluna og Vest­manna­eyja­bæ.

„Skipu­lags­stofn­un tel­ur ljóst að áhrif af völd­um lykt­ar­meng­un­ar frá starf­semi eld­is­ins í Viðlaga­fjöru geta ann­ars veg­ar orðið nokkuð nei­kvæð en ætti í öll­um til­fell­um að vera tíma­bund­in og aft­ur­kræf og tak­mark­ast við nærsvæði starf­sem­inn­ar. Áform fram­kvæmd­araðila eru til þess fall­in að draga mögu­lega úr ólykt frá starf­sem­inni með frá­sí­un úr­gangs og verk­un hans. Hins veg­ar tel­ur Skipu­lags­stofn­un að geymsla og dreif­ing á mykju sé lík­leg til þess að valda ólykt nærri geymslu- og dreif­ing­arstað. Lyktaróþæg­indi við dreif­ingu mykj­unn­ar eru þó skamm­vinn og háð þeirri verktil­hög­un sem fram­kvæmd­araðili áform­ar,“ seg­ir í áliti Skipu­lags­stofn­un­ar.

Á vef Mat­væla­stofn­un­ar seg­ir að frest­ur sé til 11. júní að gera at­huga­semd­ir við til­lög­una að rekstr­ar­leyfi.

mbl.is