Skrá Ice Fish Farm í íslensku kauphöllina

Lang stærsta fiskeldisfyrirtækið á Austfjörðum, Ice Fish Farm, stenfir á …
Lang stærsta fiskeldisfyrirtækið á Austfjörðum, Ice Fish Farm, stenfir á skráningu í íslensku kauphöllina. mbl.is/Gunnlaugur

Fisk­eld­is­fyr­ir­tækið Ice Fish Farm hef­ur ákveðið að skrá bréf fé­lags­ins á First North markað kaup­hall­ar­inn­ar hér á landi og með því verður fé­lagið með tvö­falda skrán­ingu þar sem það er einnig skráð í Kaup­höll­ina í Osló í Nor­egi.

Í til­kynn­ingu til norsku kaup­hall­ar­inn­ar kem­ur fram að gert sé ráð fyr­ir að skrán­ing­in verði samþykkt sama dag og hald­in er fjár­festa­dag­ur 28. maí. Gert er ráð fyr­ir að viðskipti með bréf­in hefj­ist í ís­lensku kaup­höll­inni 29. maí.

Ekki verða gef­in út ný eða seld hluta­bréf nú­ver­andi hlut­hafa í tengsl­um við skrán­ing­una og mun hún því ekki hafa áhrif á stöðu hlut­hafa.

„Þar sem starf­semi Ice Fish Farms fer ein­göngu fram á Íslandi er tvö­föld skrán­ing á First North á Íslandi eðli­legt og rök­rétt næsta skref fyr­ir fé­lagið. Frá skrán­ingu á Euronext Growth í Osló árið 2020 hef­ur átt sér stað veru­leg­ur vöxt­ur í rekstr­in­um og fé­lagið orðið leiðandi fisk­eld­is­fyr­ir­tæki á Aust­fjörðum. Sam­hliða höf­um við fundið fyr­ir aukn­um áhuga ís­lenskra fjár­festa á Ice Fish Farm og um­tals­verður hluti hluta­fjár fé­lags­ins er í eigu ís­lenskra fjár­festa, telj­um við því að nú sé rétti tím­inn til að fara í tvö­falda skrán­ingu á Íslandi,“ er haft eft­ir Guðmundi Gísla­syni, for­stjóra fé­lags­ins.

Skrán­ing­in er unn­in í sam­starfi við fyr­ir­tækjaráðgjöf Ari­on banka.

mbl.is