Gætu verið sektuð um 192 milljarða

Höfuðstöðvar Evrópusambandsins (ESB) í Brussel.
Höfuðstöðvar Evrópusambandsins (ESB) í Brussel. Ljósmynd/Evrópusambandið/Dati Bendo

Ekki er vitað hve lang­an tíma rann­sókn fram­kvæmda­stjórn­ar Evr­ópu­sam­bands­ins á meintu verðsam­ráði lax­eld­is­fyr­ir­tækj­anna Mowi, Lerøy, Cermaq, Salm­ar, Grieg Sea­food og Brem­nes mun taka. Fram­kvæmda­stjórn­in seg­ist í svari við fyr­ir­spurn Morg­un­blaðsins ekki bund­in tíma­mörk­um

Eld­is­fé­lög­in sex sem málið snýr að fram­leiða um 80% af öll­um eld­islaxi á heimsvísu.

Sam­an­lögð ár­svelta fé­lag­anna er um 1.920 millj­arðar og er fram­kvæmda­stjórn­inni heim­ilt að sekta fé­lög­in um allt að 10% af veltu þeirra á heimsvísu telji hún næg­ar sann­an­ir vera fyr­ir því að fé­lög­in hafi brotið gegn sam­keppn­is­regl­um Evr­ópu­sam­bands­ins. 

Lesa má meira um málið í Morg­un­blaðinu í dag. 

Nán­ar um málið
í Morg­un­blaðinu
Áskrif­end­ur:
Nán­ar um málið
í Morg­un­blaðinu
Áskrif­end­ur: