Eflingu rannsókna fagnað

Hafrannsóknaskipið Árni Friðriksson við kaja í Hafnarfjarðarhöfn.
Hafrannsóknaskipið Árni Friðriksson við kaja í Hafnarfjarðarhöfn. mbl.is/Sigurður Bogi

Já­kvæð skref eru stig­in í fyr­ir­ætl­un­um um aukna sókn í haf­rann­sókn­um og efl­ingu stjórn­sýslu fisk­eld­is, með þeim áhersl­um í fjár­mála­áætl­un rík­is­ins fyr­ir árin 2025-2029 sem ligg­ur fyr­ir Alþingi. Þetta seg­ir í um­sögn Sam­taka fyr­ir­tækja í sjáv­ar­út­vegi. Útgerð og eldi séu grunnþætt­ir í verðmæta­sköp­un og hag­sæld.

Í um­sögn SFS er gold­inn var­hug­ur við auk­inni gjald­töku í sjáv­ar­út­vegi og fisk­eldi. Um­fang sér­tækr­ar gjald­töku í þess­um grein­um sé um­fram allt sem þekk­ist hjá sam­keppn­isþjóðum. Tryggja þurfi sam­keppn­is­hæfni og svig­rúm til fjár­fest­inga.

Mik­il­vægt er, að mati SFS, að vel sé hugað að rann­sókn­um á líf­ríki sjáv­ar og að Haf­rann­sókna­stofn­un sé tryggt fé. Slíkt sé for­senda sjálf­bærr­ar nýt­ing­ar á fiski­stofn­um og já­kvæðrar kynn­ing­ar á sjáv­ar­út­vegi á er­lend­um mörkuðum. SFS tel­ur því já­kvæð skref stig­in í fjár­mála­ætl­un með því að að auka fram­lög til hafrann­rann­sókna og fisk­veiðieft­ir­lits um 700 millj. kr. árin 2025-2026 og enn meira í fram­hald­inu.

Nán­ar um málið
í Morg­un­blaðinu
Áskrif­end­ur:
Nán­ar um málið
í Morg­un­blaðinu
Áskrif­end­ur: