Lúsahreinsun á laxi í heitu baði

Brunnbáturinn, Ronja Strand, við bryggjuna á Tálknafirði.
Brunnbáturinn, Ronja Strand, við bryggjuna á Tálknafirði. mbl.is/Guðlaugur Albertsson

Norsk­ur brunn­bát­ur, Ronja Strand, er nú á Tálknafirði og er þar notaður við aflús­un á laxi. Um borð í bátn­um eru tæki þar sem heit­ur sjór renn­ur í gegn og þannig er lax­inn hreinsaður af lús sem get­ur verið mjög hvim­leið.

Á föstu­dag­inn var verið að hreinsa fisk í kví­um Arctic Fish en áhöfn­in mun einnig vinna fyr­ir Arn­ar­lax sem sömu­leiðis er með eldi vestra, að því er fram kem­ur í Morg­un­blaðinu í dag.

„Í raun­inni má segja að núna sé fisk­ur­inn sett­ur í bað. Þetta eru mjög mik­il­væg­ar fyr­ir­byggj­andi aðgerðir svo lús­in í lax­in­um nái sér ekki á strik. Hér för­um við mjög um­hverf­i­s­væn­ar leiðir og not­um eng­in lyf við hreins­un­ina. Nú er fisk­ur­inn hér í firðinum í vaxt­ar­ferli, fer í slátrun á haust­mánuðum, þá orðinn um það bil fimm kíló,“ seg­ir Eg­ill Ólafs­son, rekstr­ar­stjóri Arctic Fish á Tálknafirði, í sam­tali við Morg­un­blaðið.

Nán­ar um málið
í Morg­un­blaðinu
Áskrif­end­ur:
Nán­ar um málið
í Morg­un­blaðinu
Áskrif­end­ur: