Fjármögnun Geo Salmo klárist á næstu mánuðum

Jens Þórðarson segir að kynning á verkefninu fari fram þessa …
Jens Þórðarson segir að kynning á verkefninu fari fram þessa dagana Arnþór Birkisson

Jens Þórðar­son, fram­kvæmda­stjóri land­eld­is­fyr­ir­tæk­is­ins Geo Salmo í Þor­láks­höfn, seg­ir í sam­tali við ViðskiptaMogg­ann að fram­kvæmda­fé fyr­ir­tæk­is­ins verði í bland banka­fjár­mögn­un og hluta­fé.

„Í raun erum við að safna fé í tveim­ur til þrem­ur skref­um. Nú erum við með hluta­fjáraukn­ingu í gangi sem kem­ur til viðbót­ar þeim tveim­ur millj­örðum króna sem við söfnuðum í forút­boði síðastliðið haust. Þá voru þátt­tak­end­ur Skel fjár­fest­inga­fé­lag, Úthafs­skip, eig­end­ur Eskju ásamt norsku iðnaðarsam­steyp­unni End­úr ASA og tengd­um aðilum, ásamt hol­lenska fisk­vinnslu- og dreif­ing­ar­fyr­ir­tæk­inu Adri & Zoon.“

Sam­starfsaðilar Geo Salmo í yf­ir­stand­andi hluta­fjáraukn­ingu eru Ari­on banki og norsku bank­arn­ir DNB og Spareban­ken 1.

„Við erum að kynna verk­efnið fyr­ir fjár­fest­um þessa dag­ana. Það geng­ur mjög vel. Fjár­mögn­un­in ætti að klár­ast á næstu mánuðum.“

Finn­ur fyr­ir áhuga

Spurður al­mennt um hvernig gangi að safna fé til starf­sem­inn­ar og hvernig fjár­fest­ar meti áhætt­una í verk­efn­inu seg­ist Jens finna fyr­ir áhuga á grein­inni.

„Fólk hef­ur litið á þetta sem áhættu­sama fjár­fest­ingu en við svör­um því með því að velja tækni og út­færslu sem er margreynd ann­ars staðar. Við byggj­um á mjög góðri reynslu hjá teym­inu okk­ar. Við telj­um að við get­um brugðist afar vel við þeim áhættuþátt­um sem upp koma í svona verk­efn­um. Við höf­um fengið ágæt­is viðbrögð við því.“

Lestu ít­ar­legt sam­tal við Jens í ViðskiptaMogg­an­um í dag.

Þessi grein birt­ist
í Morg­un­blaðinu
Áskrif­end­ur:
Þessi grein birt­ist
í Morg­un­blaðinu
Áskrif­end­ur: