Þau Edda Hermannsdóttir markaðs- og samskiptastjóri hjá Íslandsbanka, Sindri Sindrason fjölmiðlamaður og Andrés Jónsson almannatengill ræddu stöðuna í baráttunni um Bessastaði í Spursmálum og sögðu að tveir frambjóðendur væru líklegri en aðrir til þess að bera sigur úr býtum.
Þar að auki mætti eldfjallafræðingurinn Ármann Höskuldsson í settið og fór yfir ástandið á Reykjanesskaga, en þar hófst enn eitt eldgosið í vikunni.
Upptöku af þættinum má sjá í spilaranum hér að neðan:
Þættinum var að miklu leyti helgað forsetakosningum sem fram fara á morgun, laugardag. Stefán Einar Stefánsson fór ofan í saumana á löngum aðdraganda kosninganna með álitsgjöfunum og voru málin krufin.
Skoðanakannanir benda til þess að kosningarnar verði spennandi og tóku álitsgjafarnir undir það.
Á miðvikudag hófst áttunda gosið á Reykjanesskaga á rúmum þremur árum og hraun umlykur nú Grindavíkurbæ. Stefán Einar ræddi við Ármann Höskuldsson um eldsumbrotin á Reykjanesskaga og framtíð Grindavíkur.
Ármann fór yfir stöðu Grindavíkur nefndi þann möguleika að hægt væri að reisa varnargarða innan núverandi varnargarða.
Fylgstu með upplýsandi samfélagsumræðu í Spursmálum alla föstudaga hér á mbl.is klukkan 14.