Eldislax strauk úr fiskeldisstöð Arctic Smolt ehf

Myndin tengist fréttinni ekki beint.
Myndin tengist fréttinni ekki beint. Ljósmynd/Colourbox

Eld­islax strauk úr fisk­eld­is­stöð Arctic Smolt ehf. að Norður-Botni á Tálknafirði fyr­ir viku. Málið er til rann­sókn­ar hjá Mat­væla­stofn­un (MAST). 

Þetta kem­ur fram í til­kynn­ingu frá MAST.

Strokið upp­götvaðist þegar viðvör­un­ar­kerfi Arctic Smolt ehf. til­kynnti að of há vatns­staða var í tanki svo vatn flæddi up­p­úr og fisk­ur lenti á gólfi stöðvar­inn­ar. Hluti fisk­anna komst í gegn­um rist­ar sem eru á niður­föll­um á gólfi og bár­ust útí sjó. 

Talið er að 22.352 seiði hafi endað á gólfi fisk­eld­is­stöðvar­inn­ar en fyr­ir utan út­rás­ina úr stöðinni fund­ust 104 dauð seiði. Net voru lögð í sjó en ekk­ert veidd­ist. Ekki hef­ur verið talið seiði í tanki eft­ir at­b­urðinn.

Mat­væla­stofn­un hef­ur kallað eft­ir gögn­um og upp­lýs­ing­um er varða viðbrögð fyr­ir­tæk­is­ins og er at­vikið til rann­sókn­ar hjá stofn­un­inni.

mbl.is