Arnarlax leiðréttir ummæli Gísla Rafns

Gísli fór með rangt mál í pontu á Alþingi, að …
Gísli fór með rangt mál í pontu á Alþingi, að sögn Arnarlax. Samsett mynd

Fisk­eld­is­fyr­ir­tækið Arn­ar­lax seg­ist aldrei hafa greitt út arð í 15 ára sögu fyr­ir­tæk­is­ins.

Þetta kem­ur fram í yf­ir­lýs­ingu frá fyr­ir­tæk­inu. Þar seg­ir að af orðum Gísla Rafns Ólafs­son­ar, þing­manns Pírata, í ræðu sem hann flutti á Alþingi á mánu­dag mætti skilja að Arn­ar­lax hafi greitt út mik­inn arð.

„Reynd­ar kom fram hjá þing­mann­in­um á ein­um stað í ræðu hans að hann átti þarna við stærsta hlut­haf­ann í Arn­ar­laxi, sem er ára­tugagam­alt norskt fisk­eld­is­fyr­ir­tæki sem geng­ur afar vel. Hins veg­ar eignaði hann svo Arn­ar­laxi arðgreiðslurn­ar skömmu síðar í sömu ræðu og það gerði mat­vælaráðherra einnig í svör­um við ræðu þing­manns­ins,“ skrif­ar fyr­ir­tækið.

Eins og ef Icelanda­ir gerðist ábyrgt um arðgreiðslur Bain Capital

Þarna hafi Gísli Rafn ekki gert grein­ar­mun á stór­um hlut­hafa og hinu ís­lenska fyr­ir­tæki.

„Þetta væri svipað því og ef Icelanda­ir yrði gert ábyrgt fyr­ir arðgreiðslum Bain Capital, sem er stærsti hlut­haf­inn í því mik­il­væga fyr­ir­tæki okk­ar Íslend­inga.“

Arn­ar­lax seg­ist vera með hundruð hlut­hafa, bæði ís­lenska og er­lenda. Flest­ir þeirra séu sjóðir sem leggja fé í at­vinnu­starf­semi í þeirri von að hún gangi vel og geti skilað spari­fjár­eig­end­um sem greitt hafa í sjóðina, ávöxt­un til langs tíma.

Starfsmenn fiskeldisfyrirtækisins Arnarlax að vinnu.
Starfs­menn fisk­eld­is­fyr­ir­tæk­is­ins Arn­ar­lax að vinnu. Ljós­mynd/​Aðsend

Þing­menn haldi fram „röng­um staðreynd­um“

Fisk­eld­isfyr­ir­tækið tek­ur fram að at­vinnu­grein­in sé „um­hverf­i­s­væn“ í ýms­um skiln­ingi en því miður hafi komið upp „al­var­leg­ar slysaslepp­ing­ar“ hjá sér og öðrum fisk­eld­is­fyr­ir­tækj­um.

At­vinnu­grein­in sé um­hverf­i­s­væn grein í þeim skiln­ingi að kol­efn­is­spor við fram­leiðslu á laxi er lítið og var­an heil­næm­ur pró­tíngjafi í heimi þar sem þörf er á að auka um­hverf­i­s­væna mat­væla­fram­leiðslu.

„Það hafa því miður komið upp al­var­leg slysaslepp­ing­ar­mál hjá bæði okk­ur hjá Arn­ar­laxi og öðrum sem rækta fisk í sjókví­um hér við land. Það er skilj­an­legt að Alþingi vilji setja skýr­ari lag­aramma um starf­semi þess­ar­ar at­vinnu­grein­ar og skapa sem mest­an hvata fyr­ir fyr­ir­tæk­in að vanda til verka,“ seg­ir í yf­ir­lýs­ing­unni.

„Arn­ar­lax vill vinna í sátt við sam­fé­lagið og byggja upp traust til grein­ar­inn­ar. Þar skipt­ir líka máli að þing­menn og ráðherr­ar séu vel upp­lýst­ir og haldi ekki fram röng­um staðreynd­um um ís­lensku fyr­ir­tæk­in í grein­inni.“

mbl.is