Erlend fjárfesting í eldi dreifi áhættu

Á Radarnum er fullyrt að erlend fjárfesting í fiskeldi hér …
Á Radarnum er fullyrt að erlend fjárfesting í fiskeldi hér á landi hafi mikla kosti. mbl.is/Ágúst Ingi

Er­lent eign­ar­hald í ís­lensku fisk­eldi er sagður styrk­leiki í ný­legri grein­ingu Radars­ins, en Sam­tök fyr­ir­tækja í sjáv­ar­út­vegi halda úti vefsíðunni þar sem birt er mikið af töl­fræðileg­um gögn­um um sjáv­ar­út­veg og fisk­eldi.

„Til eru þeir sem virðast draga í efa að fisk­eldi skilji nokkuð eft­ir sig hér á landi eða hafi raun­veru­lega efna­hags­lega þýðingu fyr­ir land og þjóð. Þetta má aðallega heyra frá þeim sem telja er­lent eign­ar­hald nei­kvætt en nokk­ur eld­is­fyr­ir­tækja hér á landi eru í meiri­hluta­eigu er­lendra aðila. Und­ir það er ekki hægt að taka því er­lend fjár­fest­ing á mik­il­væg­an þátt í því að dreifa fjár­hags­legri áhættu af inn­lendri at­vinnu­upp­bygg­ingu í fisk­eldi. Með hinni er­lendu fjár­fest­ingu hef­ur jafn­framt komið mik­il­væg reynsla og þekk­ing á upp­bygg­ingu í grein­inni,“ seg­ir í grein­ingu Radars­ins.

Þá seg­ir að ótví­rætt sé að fisk­eldið hafi haft já­kvæð áhrif á ís­lenskt efna­hags­líf. „Nú þegar er fisk­eldi orðið veiga­mik­ill liður í út­flutn­ingi Íslend­inga og mun vafa­laust verða enn fyr­ir­ferðarmeira þegar fram líða stund­ir. Fisk­eldi hef­ur burði til að vaxa að magni til á skömm­um tíma, ólíkt veiðum á villt­um fiski sem byggja á sjálf­bærri nýt­ingu á tak­mörkuðum fiski­stofn­um.“

Bent er á að fólks­fjölg­un á heimsvísu ýti und­ir eft­ir­spurn eft­ir próteini en ómögu­legt sé að mæta eft­ir­spurn­inni með aukn­um fisk­veiðum. Full­yrt er að í þess­ari stöðu séu að finna tæki­færi fyr­ir Íslend­inga með til­liti til fisk­eld­is.

„Það eyk­ur fjöl­breytni í út­flutn­ingi og styrk­ir gjald­eyrisöfl­un þjóðarbús­ins með til­heyr­andi já­kvæðum áhrif­um á at­vinnu­líf og sam­fé­lög víða um land. Ekki má held­ur gleyma þeirri staðreynd að var­an­leg­ur vöxt­ur út­flutn­ingstekna er grund­vallar­for­senda sjálf­bærs hag­vaxt­ar og bættra lífs­kjara hér á landi.“

mbl.is