„Pólitískt klámhögg“ hjá miðflokksmönnum

Matvælaráðherra lýsir þessu sem pólitísku klámhöggi.
Matvælaráðherra lýsir þessu sem pólitísku klámhöggi. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Bjarkey Ol­sen Gunn­ars­dótt­ir mat­vælaráðherra seg­ir miðflokks­menn steyta hnef­ann með því að íhuga van­traust­til­lögu í henn­ar garð. Hún seg­ir það koma sér spánskt fyr­ir sjón­ir að flokk­ur sem styðji hval­veiðar ætli að leggja fram van­traust á ráðherra sem leyfi þær. 

Steyta hnef­ann

Blaðamaður spurði ráðherr­ann út í van­traust­stil­lög­una á kynn­ing­ar­fundi stjórn­valda vegna upp­færðrar aðgerðaáætl­un­ar í lofts­lags­mál­um.

„Ég held að þetta séu miðflokks­menn steyta hnef­ann dá­lítið og sjá sér leik á borði. Mér finnst þetta ótta­legt póli­tískt klám­högg svo ég segi það bara hreint út,“ seg­ir hún og held­ur áfram:

„Það kem­ur mér líka spánskt fyr­ir sjón­ir að flokk­ur hlynnt­ur hval­veiðum ætli að leggja fram van­traust á ráðherra sem gaf út hval­veiðal­eyfi.“

mbl.is

Bloggað um frétt­ina