Veruleg aukning útflutningsverðmæta

Fiskeldið skilaði mun meiri útflutningsverðmætum í maí síðastliðnum en í …
Fiskeldið skilaði mun meiri útflutningsverðmætum í maí síðastliðnum en í sama mánuði í fyrra. Um er að ræða rúma þrjá milljarða króna. mbl.is/Helgi Bjarnason

Útflutn­ing­ur eldisaf­urða var á miklu flugi í maí og náði út­flutn­ings­verðmætið 3,2 millj­örðum króna í mánuðinum sem er 80% aukn­ing frá sama mánuði á síðasta ári. Þá er út­flutn­ings­verðmæti eldisaf­urða á fyrstu fimm mánuðum komið í rúm­lega 22 millj­arða króna, sem er 18% aukn­ing frá sama tíma­bili 2023 og hef­ur verðmæti þess­ara afurða aldrei verið meira á þess­um árs­hluta.

Fjallað er um þetta í ný­legri grein­ingu Radars­ins og er vísað í bráðabirgðatöl­ur Hag­stofu Íslands sem birt­ar voru í síðustu viku.

Mynd/​Radar­inn

Þá var út­flutn­ings­verðmæti eldisaf­urða ígildi 15% af út­flutn­ings­verðmæti sjáv­ar­af­urða á fyrstu fimm mánuðum árs­ins og um 6% af vöru­út­flutn­ings alls. Þessi hlut­föll hafa aldrei verið hærri en nú.

„Í fyrstu bráðabirgðatöl­um Hag­stof­unn­ar er út­flutn­ings­verðmæti eldisaf­urða í heild ein­ung­is birt og því ligg­ur ekki fyr­ir sund­urliðun verðmæta niður á ein­staka teg­und­ir í maí­mánuði. Vafa­laust má rekja þessa mynd­ar­legu aukn­ingu í maí til lax­eld­is, líkt og mánuðina á und­an. Þannig var út­flutn­ings­verðmæti eld­islax komið í tæpa 17 millj­arða króna á fyrstu 4 mánuðum árs­ins, sem er um 20% aukn­ing frá sama tíma­bili í fyrra á föstu gengi. Hlut­deild lax af út­flutn­ings­verðmæti eldisaf­urða í heild var rúm 87% á fyrstu 4 mánuðunum sam­an­borið við rúm 81% á sama tíma­bili í fyrra,“ seg­ir í grein­ingu Radars­ins.

Mynd/​Radar­inn

Bent er á að það var veru­leg­ur sam­drátt­ur í út­flutn­ings­verðmæti sil­ungs á tíma­bil­inu og er þar að mestu um að ræða bleikju.

„Þannig nam út­flutn­ings­verðmæti sil­ungs tæp­lega 1,5 millj­arði króna á fyrstu 4 mánuðum árs­ins sam­an­borið við 2,1 millj­arð á sama tíma í fyrra. Svipaða sögu er að segja um frjóvguð hrogn, sem er verðmæt há­tækni­fram­leiðsla. Útflutn­ings­verðmæti þeirra var komið í tæp­ar 400 millj­ón­ir króna á fyrstu 4 mánuðum árs­ins, sem er 43% sam­drátt­ur á milli ára. Á móti hafa út­flutn­ings­tekj­ur af Senegal flúru, sem er einn verðmæt­asti mat­fisk­ur í heimi, aldrei verið meiri á fyrstu 4 mánuðunum og nú í ár. Þannig var út­flutn­ings­verðmæti Senegal flúru komið í rúm­ar 500 millj­ón­ir á til­greindu tíma­bili, sem er 150% aukn­ing á milli ára á föstu gengi.“

Einnig aukn­ing í sjáv­ar­af­urðum

ýverið var greint frá því að út­flutn­ings­verðmæti sjáv­ar­af­urða í maí hafi náð 35 millj­örðum króna dem er 3,5% meira en í sama mánuði á síðasta ári í krón­um talið en þar sem lít­il breyt­ing hef­ur verið á gengi krón­unn­ar er aukn­ing­in í er­lendri mynt 4%.

Útflutn­ings­verðmæti sjáv­ar­af­urða á fyrstu fimm mánuðum árs­ins 2024 námu 146 millj­örðum króna sem er 1,5% minna en á sama tíma­bili á síðasta ári að teknu til­liti til geng­is­breyt­inga.

mbl.is