Framsóknarmenn munu verja matvælaráðherra

Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir matvælaráðherra.
Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir matvælaráðherra. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Ingi­björg Ólöf Isak­sen, þing­flokks­formaður Fram­sókn­ar­flokks­ins, seg­ir þing­menn Fram­sókn­ar ætla að verja Bjarkeyju Ol­sen Gunn­ars­dótt­ur mat­vælaráðherra gegn van­traust­stil­lög­unni sem Miðflokks­menn lögðu fram á Alþingi í dag.

Hún seg­ir eng­an þing­fund skipu­lagðan til að ræða til­lög­una. Þá seg­ist hún ekki vita til þess að málið hafi verið rétt sér­stak­lega á milli stjórn­ar­flokk­anna.

Hefðu kosið styttri málsmeðferðar­tíma

Þing­menn Miðflokks­ins lögðu fram van­traust­stil­lögu á Bjarkeyju Ol­sen á þingi í dag. Bergþór Ólason, þingmaður flokks­ins, seg­ir ástæðuna vera fram­göngu ráðherra í hval­veiðimál­inu.

Hval­ur óskaði eft­ir end­ur­nýj­um leyf­is til veiða á langreyðum 30. janú­ar og var um­sókn­in fyrst af­greidd tæp­um fjór­um og hálf­um mánuði síðar. Þá gild­ir leyfið aðeins út yf­ir­stand­andi ár.

Ingi­björg kveðst taka und­ir að málsmeðferðar­tím­inn hefði mátt vera skemmri.

Út frá þeim lög­um sem séu í gildi í dag sé heim­ilt að veiða hval og því hefði verið eðli­legt að veita leyfið til lengri tíma.

Ingibjörg Isaksen þingflokksformaður Framsóknarflokksins.
Ingi­björg Isak­sen þing­flokks­formaður Fram­sókn­ar­flokks­ins. Ljós­mynd/​Aðsend
mbl.is

Bloggað um frétt­ina