Viðreisn mun styðja vantrauststillöguna

Samsett mynd/mbl.is/Eggert/Kristófer

Óhætt er að full­yrða að þing­menn Viðreisn­ar muni greiða at­kvæði með van­traust­stil­lögu Miðflokks­ins á hend­ur Bjarkeyju Ol­sen Gunn­ars­dótt­ur mat­vælaráðherra.

Þetta seg­ir Hanna Katrín Friðriks­son, þing­flokks­formaður Viðreisn­ar, í sam­tali við mbl.is.

„Við höf­um í sjálfu sér ekki fundað ná­kvæm­lega um þessa til­teknu til­lögu en ég held að mér sé óhætt að full­yrða það að við mun­um vera á græna takk­an­um,“ seg­ir Hanna aðspurð.

„Þetta er stjórn­sýsla sem geng­ur ekki“

Miðflokk­ur­inn lagði fram til­lög­una í dag og var henni dreift til þing­manna við upp­hafi þing­fund­ar.

Ástæðan er fram­ganga henn­ar í hval­veiðimál­inu, en vegna óvenju langs tíma til leyf­is­veit­ing­ar af hálfu mat­vælaráðuneyt­is­ins stefn­ir allt í að eng­in vertíð verði hjá Hvali hf. í sum­ar.

„Þetta er stjórn­sýsla sem geng­ur ekki og það geng­ur held­ur ekki að stjórn­völd nái ein­hvern veg­inn að búa þá hefð til að við brot í starfi sé nóg að skipta bara út ráðherr­um og þá sé málið dautt,“ seg­ir Hanna.

Kosið um til­lög­una á morg­un eða hinn

Á und­an­förn­um árum hefðu umræður og at­kvæðagreiðsla farið fram ein­um eða tveim­ur sól­ar­hring­um eft­ir að van­traust­stil­laga er lögð fram.

„Það verður spenn­andi að sjá hvaða ráðherra þau draga upp úr hatt­in­um næst,“ seg­ir hún kím­in.

mbl.is