„Starfsgreinin hefur fest sig í sessi“

Halla Signý Kristjánsdóttir (t.v.) og Iða Marsibil Jónsdóttir (t.h.), þingmenn …
Halla Signý Kristjánsdóttir (t.v.) og Iða Marsibil Jónsdóttir (t.h.), þingmenn Framsóknar, hörmuðu frestun frumvarpsins. Samsett mynd

Tveir þing­menn Fram­sókn­ar­flokks­ins harma frest­un lagar­eld­is­frum­varps Bjarkeyj­ar Ol­sen Gunn­ars­dótt­ur mat­vælaráðherra.

Halla Signý Kristjáns­dótt­ir og Iða Marsi­bil Jóns­dótt­ir, þing­menn Fram­sókn­ar, segja frum­varpið ætlað að vinna í þágu um­hverf­is­vernd­ar og að tími sé kom­inn á skýr­ari lag­aramma í kring­um grein­ina. 

„Starfs­grein­in hef­ur fest sig í sessi,“ sagði Iða á fundi Alþing­is fyrr í dag und­ir liðnum störf þings­ins. 

„Fyr­ir vest­an mátti muna sinn fíf­il fegri“

Í ræðu sinni kvaðst Iða hafa starfað um ára­bil inn­an fisk­eld­is­geir­ans og lagði áherslu á mik­il­vægi geir­ans fyr­ir sam­fé­lagið á Vest­fjörðum.

Hún rifjaði upp að árið 2014 hafi fyrstu seiðin verið sett í sjó hjá ótil­greindu fyr­ir­tæki og tíu árum síðar eru fram­leidd tæp­lega 18.000 tonn af laxi hjá fyr­ir­tæk­inu og 200 manns í vinnu hjá því.

Iða kvaðst hafa starfað í árabil innan fiskeldisgeirans.
Iða kvaðst hafa starfað í ára­bil inn­an fisk­eld­is­geir­ans. Ljós­mynd/​Aðsend

Ég leyfi mér að full­yrða það hér að árið 2014 var ekki sér­lega bjart fram und­an í þess­um þorp­um fyr­ir vest­an og máttu þau muna sinn fíf­il fegri,“ sagði Iða. 

Hún viður­kenndi að lok­um að starfs­grein­in væri um­deild, en að hún hefði fest sig í sessi og brýndi fyr­ir þing­mönn­um að klára málið ákveðið og með sóma á haustþingi.  

Skorti kjark

Halla Signý lýsti von­brigðum yfir þeirri stöðu að frum­varpið hefði ekki náð fram að ganga á vorþingi og sagði það eiga að stuðla að betri stjórn­un og um­hverf­is­vernd í lagar­eldi. Það væri ekki síður mik­il­vægt fyr­ir sam­fé­lög sem búa við sjókvía­eldi held­ur einnig um­hverfið. 

„Virðulegi for­seti. Það er al­gjör firra að hafa ekki kjark til að klára þessa mik­il­vægu stefnu um lagar­eldi og við verðum að taka upp þráðinn í haust og klára þetta. Ann­ars er allt tal um ábyrga upp­bygg­ingu, eft­ir­lit og sjálf­bærni tómið eitt og þýðir ekki að flagga því fram­an í mig að minnsta kosti,“ sagði hún. 

Halla Signý sagði frumvarpið stuðla að frekari umhverfisvernd.
Halla Signý sagði frum­varpið stuðla að frek­ari um­hverf­is­vernd. mbl.is/​Sig­urður Bogi
mbl.is