Lilja Rafney Magnúsdóttir, varaþingmaður Vinstri grænna, hefur sagt sig úr flokknum vegna svika flokksins við eigin sjávarútvegsstefnu.
Þetta kemur fram í grein sem hún birti á vef bb.is í gær eftir að þingmenn flokksins greiddu atkvæði með frumvarpi um kvótasetningar á grásleppu.
„VG er að færa grásleppuna yfir í gjafakvótakerfið í nafni sérhagsmuna og almannahagsmunir og stjórnarskrávarin atvinnuréttindi eru fótum troðin. Ekkert í verndun fiskistofna kallar á kvótasetningu með framsali né heldur það að fénýta sameiginlega auðlind þjóðarinnar í þágu fjármagnseigenda,“ segir Lilja Rafney meðal annars í greininni.
„Þar tók steininn úr þegar VG samþykkti við þinglok frumvarp um kvótasetningu og framsal á Grásleppu og tók þar með upp stefnu stefnu Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks í sjávarútvegsmálum,“ segir Lilja ennfremur.
Lilja segir að Vinstri grænir hafi verið með matvælaráðuneytið þetta kjörtímabil og ekkert hafi verið gert til að styrkja strandveiðar eða efla félagslega hluta kerfisins heldur þvert á móti hafi tíminn verið nýttur í vinnu fjölmennar auðlindanefndar sem ekkert hafi komið út fyrir þá minnstu í kerfinu, félagslega hlutann og strandveiðarnar.
„Ég kveð VG með sorg í hjarta en er þakklát fyrir margt gott sem VG hefur staðið fyrir og komið í verk sem ekki er sjálfgefið í ólgusjó stjórnmálanna þau12 ár sem ég sat á Alþingi . Ég var ein af stofnfélögum Vinstrihreyfingarinnar græns framboðs og hef lagt mitt af mörkum í flokksstarfinu síðustu 25 árin en finn að ég á ekki samleið lengur með flokksforystunni þó stefna VG sé um margt mjög góð.“