Laxey komin með rekstrar- og starfsleyfi

Höfuðstöðvar Laxeyjar í Vestmannaeyjum.
Höfuðstöðvar Laxeyjar í Vestmannaeyjum. Mbl.is/Óskar Pétur Friðriksson

Mikl­um áfanga lauk á dög­un­um hjá Lax­ey hf. sem vinn­ur að því að koma sjö þúsund tonna land­eld­is­stöð í Viðlaga­fjöru í Vest­manna­eyj­um í full­an rekst­ur, en fyr­ir­tækið hef­ur bæði fengið starfs­leyfi út­gefið af Um­hverf­is­stofn­un og rekstr­ar­leyfi út­gefið af Mat­væla­stofn­un, að því er fram kem­ur í Morg­un­blaðinu í dag.

Stefnt er að því að seiði verði alin upp í seiðaeld­is­stöð í Friðar­höfn og verði flutt á sér­út­bún­um seiðaflutn­inga­vögn­um til mat­fisk­eld­is í eld­is­stöðinni í Viðlaga­fjöru. Áætlað er að nýta jarðsjó og hlýj­an yf­ir­borðssjó í eld­is­stöðinni í Viðlaga­fjöru.

Í starfs­leyf­inu set­ur Um­hverf­is­stofn­un meðal ann­ars skil­yrði um að mann­virki við út­rás frá­rennsl­is skuli tryggi­lega frá­gengið þannig að það sé viðun­andi rennsli. Einnig er Lax­ey gert að „tryggja viðun­andi hreins­un frá­rennslis­vatns með tromlus­íu eða öðrum sam­bæri­leg­um eða betri búnaði sem hreins­ar frá­rennslið áður en því er veitt í viðtaka­tjörn/​viðtaka.“

Nán­ar er fjallað um málið í Morg­un­blaðinu í dag.

Nán­ar um málið
í Morg­un­blaðinu
Áskrif­end­ur:
Nán­ar um málið
í Morg­un­blaðinu
Áskrif­end­ur: