Laxey lýkur 900 milljóna hlutafjárútboði

Seiðaeldisstöðin er að verða klár. Vissara þótti að Laxey yrði …
Seiðaeldisstöðin er að verða klár. Vissara þótti að Laxey yrði ekki háð kaupum á seiðum annarra. Ljósmynd/Aðsend

Lax­ey, fé­lag sem bygg­ir upp land­eldi á laxi í Vest­manna­eyj­um, lauk ný­lega 900 millj­óna króna viðbót­ar hluta­fjáraukn­ingu sem verður nýtt til að hefja und­ir­bún­ing á öðrum áfanga í upp­bygg­ingu á land­eldi fé­lags­ins.

Þetta kem­ur fram í til­kynn­ingu frá Lax­ey.

„Áfangi tvö mun bæta 4.500 tonna fram­leiðslu á laxi við þau 4.500 tonn sem eru nú þegar full­fjár­mögnuð í áfanga eitt. Alls er stefnt að því að byggja áframeldið upp í sex jafn­stór­um áföng­um,“ seg­ir í til­kynn­ing­unni.

Mik­ill áhugi fjár­festa

Þá kem­ur fram að ákvörðunin um að fara í hluta­fjáraukn­ingu hafi komið til vegna áhuga fjár­festa.

„Ákvörðunin um að fara í þessa hluta­fjáraukn­ingu nú var tek­in vegna mik­ils áhuga fjár­festa í fram­haldi af 6 millj­arða hluta­fjárút­boði fé­lags­ins í apríl á þessu ári. Nýir öfl­ug­ir hlut­haf­ar tóku þátt núna og má þar nefna Far­vatn Pri­vate Equity og Kontr­ari, tvö norsk fjöl­skyldu­fé­lög með mikla reynslu af fjár­fest­ing­um tengd­um fisk­eldi,“ seg­ir í til­kynn­ing­unni.

Norski fjár­fest­inga­bank­inn Arctic Secu­rities var um­sjón­araðili hluta­fjárút­boðsins, en Mar Advisors eru fjár­málaráðgjaf­ar fyr­ir LAX­EY.

mbl.is