„Þurfum að taka skólann inn í nútímann“

Háskólinn á Hólum ætlar að hefja framkvæmdir á 5.000 fm …
Háskólinn á Hólum ætlar að hefja framkvæmdir á 5.000 fm háskólabyggingu á Sauðárkróki í haust. mbl.is/Sigurður Bogi

Há­skól­inn á Hól­um áform­ar að hefja bygg­ingu á sér­hæfðu kennslu- og rann­sókn­ar­hús­næði í lagar­eldi sem og sjáv­ar- og ferskvatns­líf­fræði á Sauðár­króki í haust. Verk­efnið er þegar full­fjár­magnað og verður bygg­ing­in allt að 5.000 fer­metr­ar.

Blaðamaður sló á þráðinn til Hólm­fríðar Sveins­dótt­ur, rektors Há­skól­ans á Hól­um, og spurði hana út í þess­ar fyr­ir­huguðu fram­kvæmd­ir.

„Verk­efnið er sem stend­ur núna í for­at­hug­un­ar­fasa. Búið er að gera rýmis­at­hug­un sem er svona þarfagrein­ing og núna er verk­efnið í kostnaðarmati hjá Fram­kvæmda­sýsl­unni. Við eig­um von á skýrslu mjög fljót­lega um heild­ar­kostnað á bygg­ing­unni,“ seg­ir Hólm­fríður.

Stefna á fram­kvæmd­ir í haust

Hvenær er svo áætlað að bygg­ing geti haf­ist?

„Við erum að horfa á haustið, kannski í októ­ber eða nóv­em­ber,“ svar­ar Hólm­fríður en að verk­efn­inu sé skipt upp í tvo fasa og byrjað verði á þeim fyrri.

„Það ligg­ur svo rosa­lega mikið á þessu lagar­eld­is­húsi, sem er ekki til staðar á Íslandi. Þetta er rann­sókn­ar- og kennslu­hús­næði þar sem aðgang­ur að sjó og fersku vatni er til staðar. Þannig að við erum að leggja allt kapp á að það komi upp sem fyrst.“

Hún sér fyr­ir sér að hægt verði að byrja að kenna í þess­ari nýju bygg­ingu á haustönn 2025 ef áætlan­ir ganga eft­ir. Næsti fasi færi svo í gang á næsta ári en að búið sé að fjár­magna hann að hluta.

Nú þegar ligg­ur fyr­ir full­fjár­mögn­un á fyrsta fasa, eld­is­rým­inu, en það var samþykkt á fjár­hags­áætl­un rík­is­stjórn­ar­inn­ar fyr­ir árin 2025-2026.

Einnig seg­ir í nefndaráliti fjár­laga­nefnd­ar um fjár­mála­áætl­un fyr­ir árin 2025-2029 að horfa þurfi til þess að full­fjár­magna fasa tvö.

„Við feng­um að gjöf Hóla­lax í Hjalta­dal en þar er bara ferskt vatn svo ekki er hægt að nota það hús­næði, svo það verður selt til að fjár­magna upp­bygg­ingu á Hól­um,“ seg­ir Hólm­fríður.

Vill aðgreina staðar­haldið og skóla­starf­sem­ina

Hún seg­ist hafa bar­ist fyr­ir því að aðgreina staðar­haldið á Hól­um frá skóla­starf­sem­inni og skýra hlut­verk­in bet­ur. Vís­ar hún til íbúðarþjón­ustu, ferðaþjón­ustu, vígslu­bisk­up­sembætt­is­ins, há­skól­ans og sögu- og menn­ing­arstaðar­ins Hóla.

„Ég er að berj­ast fyr­ir því að skóla­starf­sem­in fari al­farið niður á hest­húsa­svæðið þar sem hesta­fræðideild­in er, þannig að staður­inn sjálf­ur, Hól­ar, verði meira sögu- og menn­ing­arstaður, áfangastaður fyr­ir ferðamenn, því þar er mikið af minj­um sem þarf að halda við og eru merki­leg­ar en það þarf að vera inni í okk­ar fjár­mögn­un ef við eig­um að standa und­ir því.“

Síðan kem­ur þessi nýja bygg­ing á Sauðár­króki þannig að skól­inn verður þar með á tveim­ur stöðum í Skagaf­irði eins og hann var þegar hann var með hús­næði á Sauðár­króki, áður en samn­ing­ur­inn rann út í ág­úst í fyrra.

Hvernig hafið þið brúað bilið eft­ir að þið misstuð hús­næðið á Sauðár­króki?

„Bæði hef­ur dregið úr rann­sókn­um sem þarfn­ast sjáv­ar og svo höf­um við líka fengið að fara með nem­end­ur út í eld­is­stöðvarn­ar sjálf­ar, út í iðnaðinn. Við höf­um mikið verið með svo­kallaðar lot­ur, þegar nem­end­ur hafa verið að koma í kennslu­lot­ur þá höf­um við verið að fara með hóp­ana þangað.“

Hólm­fríður seg­ir aðsókn­ina í námið svo mikla að fyr­ir­tæk­in eigi orðið erfitt með að taka á móti svona mörg­um nem­end­um.

Spurð hvað skýri þessa miklu aðsókn seg­ir Hólm­fríður að mik­ill vöxt­ur sé í lagar­eldi og því sé mik­ill skort­ur á fólki fyr­ir­sjá­an­leg­ur. Það væru um 700 til 800 stöður sem þyrfti að manna á næstu árum bara til að standa und­ir þess­um vexti.

Þrennt sem efl­ir skól­ann

Að sögn Hólm­fríðar er það einkum þrennt sem þurfi til að efla Há­skól­ann á Hól­um: Það er sam­starf við öfl­ug­an há­skóla og það hafa þau sann­ar­lega með mynd­un há­skóla­sam­stæðu með Há­skóla Íslands.

Síðan er það aðgrein­ing á staðar­haldi og skóla­starfi á Hól­um og loks upp­bygg­ing á kennslu- og rann­sókna­hús­næði fyr­ir skól­ann. Hún seg­ir að skól­inn hafi verið við það að verða hús­næðis­laus því gamla skóla­bygg­ing­in sé mygluð.

Hólm­fríður seg­ir mik­il­vægt í nú­tíma­sam­fé­lagi að hafa svona sér­hæf­ingu eins og Há­skól­inn á Hól­um bjóði upp á.

„Við get­um ekki haft allt sam­an í ein­um hrærigraut. Við þurf­um svo­lítið að taka skól­ann inn í nú­tím­ann, en hann er á rosa­lega góðum grunni. Þetta er auðvelt af því að fyr­ir­renn­ar­ar mín­ir hafa unnið svo gott starf. Við erum líka að stækka kök­una með því að fara inn í há­skóla­sam­stæðu við HÍ.“

mbl.is