5.196 laxar hafi sloppið úr landeldisstöð

Seiði úr eldisstöð Smaherja fiskeldi í Öxarfirði sluppu í settjörn …
Seiði úr eldisstöð Smaherja fiskeldi í Öxarfirði sluppu í settjörn stöðvarinnar. Ljósmynd/Samherji

Mat­væla­stofn­un tel­ur að það hafi verið 5.196 eld­islaxa­seiði sem sluppu úr land­eld­is­stöð Sam­herja í Öxarf­irði en ekki 868 eins og áður var talið. Stofn­un­in tel­ur einnig að þessi seiði hafi þrosk­ast í sett­jörn við stöðina og þaðan strokið í sjó.

Stofn­un­inni til­kynn­ing barst frá Sam­herja fisk­eldi ehf. mánu­dag­inn 6. maí um óhapp sem gæti hafa leitt til stroks eld­islax úr fisk­eld­is­stöðinni í Silf­ur­stjörn­unni í Öxarf­irði. Strokið upp­götvaðist við eft­ir­lit starfs­manna er seiði sáust í sett­jörn stöðvar­inn­ar en talið er að at­vikið hafi átt sér stað 2. maí þegar vatns­yf­ir­borð hækkaði í seiðak­ari með þeim af­leiðing­um að fisk­ur sogaðist út um yf­ir­fallsop og yfir í frá­rennsliskassa.

„Ekki var hægt að úti­loka að seiðin hafi smolt­ast í sett­jörn og kom­ist út í sjó. Sam­kvæmt upp­lýs­ing­um frá rekstr­araðila fund­ust 868 seiði utan kers en óljóst var á þeim tíma­punkti hversu mörg seiði struku í heild,“ seg­ir í til­kynn­ingu á vef Mat­væla­stofn­un­ar.

Stofn­un­in tók málið til rann­sókn­ar og óskaði eft­ir upp­lýs­ing­um frá fyr­ir­tæk­inu, þar á meðal upp­lýs­ing­ar um þær aðgerðir sem gripið var til í þeim til­gangi að end­ur­heimta seiðin og hve mörg þau væru.

„Við rann­sókn máls­ins kom í ljós að rekstr­araðili gat ekki gert grein fyr­ir 5.196 fisk­um og dreg­ur Mat­væla­stofn­un þá álykt­un að það sé sá fjöldi seiða sem mögu­lega hafi smolt­ast í sett­jörn og strokið út í sjó,“ seg­ir í til­kynn­ing­unni.

Þá seg­ir að Mat­væla­stofn­un hafi gert at­huga­semd­ir við að „fisk­eld­is­stöðin var ekki út­bú­in eld­is­búnaði sem var nægj­an­lega fisk­held­ur. Þá var fisk­eld­is­stöðin ekki út­bú­in nægj­an­lega fínofn­um net­um til að fanga þau seiði sem struku úr stöðinni. Mat­væla­stofn­un mun hafa eft­ir­lit með að unnið hafi verið úr al­var­leg­um frá­vik­um.“

mbl.is