Strokulöxum fækkar í norskum ám

Vísindamenn finna töluvert færri strokulaxa úr norsku sjókvíaeldi í ám …
Vísindamenn finna töluvert færri strokulaxa úr norsku sjókvíaeldi í ám Noregs. Erfðablöndun telja þeir þó enn áhyggjuefni. Ljósmynd/Havforslningsinstituttet

Minna verður vart við eld­islax í ám Nor­egs og voru á síðasta ári færri ár með mik­inn eða hóf­leg­an fjölda laxa sem strokið hafa úr norsku sjókvía­eldi. Þetta er meðal þess sem fram kem­ur í skýrslu norsku haf­rann­sókna­stofn­un­ar­inn­ar, Hav­forskn­ings­instituttet, fyr­ir árið 2023 vegna sért­saks vökt­un­ar­verk­efn­is vegna strokulax, að því er seg­ir í um­fjöll­un Morg­un­blaðsins.

Vökt­un­in hófst 2014 að beiðni fiski­stofu Nor­egs, Fisker­idirek­toratet, og er í skýsl­unni lagt mat á fjölda strokulaxa í 189 ám á síðasta ári.

Fram kem­ur í skýrsl­unni að í 171 á er metið að lítið sé um eld­islax eða inn­an við 4% laxa. Það bend­ir til batn­andi ástands þar sem 86% þeirra vatns­leiða sem voru skoðaðar árið á und­an voru tald­ar hafa lítið um eld­islax.

Aðeins 5% ánna á síðasta ári voru með hóf­leg­an fjölda eld­islaxa eða á bil­inu fjög­ur til tíu pró­sent laxa. Árið 2022 voru hins veg­ar 10% þeirra vatns­leiða sem til skoðunar voru sem höfðu þenn­an fjölda eld­islaxa. Sex pró­sent áa í skýrsl­unni fyr­ir 2022 voru með mik­inn fjölda eld­islaxa eða yfir 10% fiska. Í fyrra hafði þetta þó lækkað í 5% eða níu af þeim 189 ám sem til skoðunar voru.

Fækk­un­in bend­ir því til þess að þær aðgerðir sem gripið hef­ur verið til í þeim til­gangi að fækka til­fell­um þar sem lax slepp­ur úr kví­um hafa virkað. Þetta álykta höf­und­ar skýrsl­unn­ar og benda á fjöldi þeirra laxa sem sleppa í hlut­falli af fram­leiðslu er inn­an við 0,1%.

Nán­ar má lesa um málið í Morg­un­blaðinu í dag.

Nán­ar um málið
í Morg­un­blaðinu
Áskrif­end­ur:
Nán­ar um málið
í Morg­un­blaðinu
Áskrif­end­ur: