Verkefni vaktað og því skipt í áfanga

Mikil uppbygging er áformuð í landeldi í nágrenni Þorlákshafnar á …
Mikil uppbygging er áformuð í landeldi í nágrenni Þorlákshafnar á næstu misserum. mbl.is/Sigurður Bogi

Álit Skipu­lags­stofn­un­ar á um­hverf­is­mats­skýrslu um fyr­ir­hugað 20 þúsund tonna land­eldi fyr­ir­tæk­is­ins Thors land­seld­is sem verður í Ölfusi skammt vest­an Þor­láks­hafn­ar, er al­mennt já­kvætt. Tel­ur stofn­un­in að veiga­mestu um­hverf­isáhrif eld­is­ins verði á grunn­vatn, en óvissa sé fyr­ir hendi um um­fang þeirra og áhrif. Því verði að viðhafa um­fangs­mikla vökt­un og áfanga­skipta upp­bygg­ingu fyr­ir­tæk­is­ins, svo áhrif hvers áfanga liggi fyr­ir áður en haf­ist verður handa við þann næsta.

Thor fisk­eldi áform­ar að byggja stöðina upp í þrem­ur áföng­um og er sá fyrsti þegar haf­inn, en skóflu­stunga að seiðaeld­is­stöð fyr­ir­tæk­is­ins var tek­in fyrr í þess­um mánuði. Auk þess að sótt verður um leyfi til eld­is á laxi áform­ar fyr­ir­tækið einnig að ala bleikju og regn­bogasil­ung.

Fyrsti áfang­inn felst í bygg­ingu seiðaeld­is­stöðvar­inn­ar með fram­leiðslu­getu upp á 300 tonn af seiðum ár­lega og eld­is­stöðvar fyr­ir áframeldi á 5 þúsund tonn­um af 6 kílóa fiski.

Nán­ari um­fjöll­un er að finna í Morg­un­blaðinu sem kom út í gær

Nán­ar um málið
í Morg­un­blaðinu
Áskrif­end­ur:
Nán­ar um málið
í Morg­un­blaðinu
Áskrif­end­ur: