Bandaríski rapparinn Snoop Dogg á meðal þeirra síðustu sem bera Ólympíukyndilinn áður en leikarnir verða settir á föstudaginn.
Ólympíukyndillinn kom til Frakkland í byrjun maí og hefur verið á ferð um landið. Eldurinn er kominn til Parísar og Snoop Dogg mun hlaupa með hann um Saint-Denis hverfið sem er rétt hjá Stade de France leikvangnum.
Nikola Karabatic sem er talinn einn besti handboltamaður í heimi, Charles Leclerc ökumaður í Formúlu 1 og Arsene Wenger fyrrverandi knattspyrnustjóri Arsenal voru á meðal þeirra sem báru eldinn.
The rapper was born in Los Angeles - the host city for the 2028 Games 🌴☀️#BBCOlympics pic.twitter.com/4ZLFVHejVc
— BBC Sport (@BBCSport) July 23, 2024
Snoop Dogg er fæddur í Los Angeles en þar verða Ólympíuleikarnir árið 2028.