Snæfríður Sól Jórunnardóttir var fimmtánda inn í undanúrslit í 200 metra skriðsundi á Ólympíuleikunum í París í dag.
Hún var í þriðja riðli af fjórum í undanrásum og varð þar í fimmta sæti af átta keppendum á 1:58.32 en Íslandsmetið sem Snæfríður sló á EM í Belgrad í Serbíu er 1:57,85.
Hún keppir því aftur í undanúrslitum klukkan 19:50 í kvöld en þar berjast sextán bestu sundkonurnar um átta sæti í úrslitasundinu sem fer fram annað kvöld.