Mollie O'Callaghan vann gull og sló í leið ólympíumetið í 200 metra skriðsundi kvenna í París í kvöld.
Metið tók hún af samlöndu sinni Ariarne Titmus sem hafnaði í öðru sæti. Hún er heimsmethafinn og átti áður einnig ólympíumetið.
O'Callaghan kom í mark á tímanum 1:53,27 mínútur en met Titmus var 1:53,50 mínútur.
Heimsmet Titmus er hins vegar mun betra en það setti hún í Brisbane fyrr í sumar. Þá kom hún í mark á tímanum 1:52,23 sekúndur og sundið í kvöld því ákveðin vonbrigði.
Í þriðja sæti varð Slobhan Bernadette Haughey frá Hong Kong.
O'Callaghan eru langbestu sundkonur heims í 200 metra skriðsundi en heimsmetið sem Titmus setti tók hún einmitt af O'Callaghan