Vestfirðirnir hafa fengið vind í seglin

Ísafjörður er að eflast.
Ísafjörður er að eflast. mbl.is/Sigurður Bogi

„Með sjókvía­eldi og þeim um­svif­um sem því fylgja hafa Vest­f­irðirn­ir að nýju fengið vind í segl­in,“ seg­ir Halla Signý Kristjáns­dótt­ir alþing­ismaður.

„Byggð hér hef­ur eflst, at­vinnu­tæki­færi skap­ast og farið hef­ur verið í ýms­ar fjár­fest­ing­ar. Innviðaskuld­in sem mynd­ast hafði er nú gold­in með upp­bygg­ingu vega víða sem valda bylt­ingu hér um slóðir. Þó er mik­il­vægt að upp­bygg­ing hér sé í sátt við sam­fé­lagið og viðhorf á hverj­um tíma. Þess vegna er þörf á að fisk­eld­inu verði sem fyrst sett­ur lag­arammi svo ekk­ert fari milli mála.“

Á ferð vestra á dög­un­um tók Morg­un­blaðið tali Höllu Sig­nýju, þing­mann Fram­sókn­ar­flokks­ins í Norðvest­ur­kjör­dæmi, sem býr að Holti í Önund­arf­irði.

Halla Signý hefur setið á Alþingi síðan árið 2017.
Halla Signý hef­ur setið á Alþingi síðan árið 2017. mbl.is/​Sig­urður Bogi

Hún hef­ur setið á Alþingi frá 2017; á tíma og margt hef­ur breyst á heima­slóðum henn­ar vestra. Lax­eldið er þar stór áhrifaþátt­ur; kví­ar eru á fjörðum og í landi marg­vís­leg þjón­usta tengd eld­inu. Er þar nær­tækt að nefna laxaslát­ur­húsið stóra sem byggt var í Bol­ung­ar­vík, en starf­semi þar hófst þar fyr­ir um hálfu ári. Aukn­um um­svif­um í eld­inu hef­ur fylgt að íbúaþróun á svæðinu hef­ur snú­ist við með nýj­um störf­um. Mikið er fjár­fest og tekj­ur skap­ast.

Nán­ar má lesa um málið í Morg­un­blaðinu í dag, þriðju­dag.

Nán­ar um málið
í Morg­un­blaðinu
Áskrif­end­ur:
Nán­ar um málið
í Morg­un­blaðinu
Áskrif­end­ur: