Hafnar ásökunum forstjóra MAST

Ester segir að ekkert saknæmt sé að finna í skrifum …
Ester segir að ekkert saknæmt sé að finna í skrifum hennar. mbl.is/Eggert Jóhannesson

For­stjóri MAST og tveir starfs­menn stofn­un­ar­inn­ar hafa gefið út kæru vegna skoðana­grein­ar sem birt­ist á Vísi þann 16. júlí.

Þetta kem­ur fram í til­kynn­ingu frá MAST. 

Í til­kynn­ing­unni er hinn kærði ekki nafn­greind­ur en ætla má að um sé að ræða Ester Hilm­ars­dótt­ur sem birti skoðana­grein sem ber fyr­ir­sögn­ina „Af glyðru­gangi eft­ir­lits­stofn­ana“.

Ester skrifaði grein­ina í til­efni þess að MAST veitti Arn­ar­laxi ehf. rekstr­ar­leyfi til fisk­eld­is á þrem­ur stöðum í Ísa­fjarðar­djúpi.

Þar sak­ar hún starfs­menn MAST um að „skaka sér í skrif­stofu­stól­un­um og skrjáfa svo seðlun­um sem norsk­ir auðkýf­ing­ar hafa stungið í vasa þeirra um leið og þeir skrifi upp á rekst­ar­leyfi til fisk­eld­is í Ísa­fjarðar­djúpi þrátt fyr­ir mót­mæli Vega­gerðar­inn­ar og Land­helg­is­gæsl­unn­ar“.

Ester Hilmarsdóttir náttúruunnandi
Ester Hilm­ars­dótt­ir nátt­úru­unn­andi Ljós­mynd/​Aðsend

Seg­ir ekk­ert sak­næmt að finna

Ester hafn­ar því al­farið að eitt­hvað sak­næmt sé að finna í skrif­um henn­ar. 

„Ég hafna því al­farið að nokkuð sak­næmt sé að finna í skrif­um mín­um um glyðru­gang eft­ir­lits­stofn­anna sem for­stjóri Mat­væla­stofn­un­ar (MAST) og tveir starfs­menn henn­ar hafa kosið að kæra mig fyr­ir til lög­reglu.[...]. Eft­ir­lits­stofn­an­ir eru ekki yfir gagn­rýni hafn­ar frek­ar en aðrir,“ skrif­ar Ester í yf­ir­lýs­ingu sinni. 

Í til­kynn­ing­unni sem MAST sendi frá sér vegna máls­ins seg­ir að stofn­un­in vinni fag­lega að um­sókn­um um rekstr­ar­leyfi fisk­eld­is. 

„For­stjóri stofn­un­ar­inn­ar og starfs­menn sem komu að meðferð og út­gáfu rekstr­ar­leyf­is­ins telja að með fram­kom­inni aðdrótt­un sé al­var­lega vegið að heiðri og æru þeirra og verði ekki kom­ist hjá öðru en að kæra skrif­in til lög­reglu,“ seg­ir í til­kynn­ing­unni.

mbl.is