Grímur Atlason, framkvæmdastjóri Geðhjálpar, og Tryggvi Hjaltason, formaður hugverkaráðs og höfundur nýlegrar skýrslu um stöðu drengja í íslensku menntakerfi, sátu fyrir svörum í nýjasta þætti Spursmála sem sýndur var í streymi hér á mbl.is fyrr í dag.
Upptöku af þættinum má sjá í spilaranum hér að neðan, á Spotify og YouTube og er hún öllum aðgengileg.
Í kjölfar hnífaárásarinnar í miðborg Reykjavíkur á Menningarnótt þar sem ung stúlka týndi lífi sínu og fleiri ungmenni særðust hafa margar spurningar vaknað um hvers konar samfélagsbreytingar eru að eiga sér stað hér á landi.
Í þættinum ræddu þeir Grímur og Tryggvi tæpitungulaust um afleiðingar stóraukins vopnaburðar, óöryggi og vanlíðan barna og með hvaða hætti hægt sé að sporna við þessari válegu þróun. Enda um risavaxið mál að ræða sem snertir allt samfélagið í heild.
Píratinn Björn Leví Gunnarsson fór yfir helstu tíðindi í líðandi viku ásamt Teiti Birni Einarssyni, þingmanni Sjálfstæðisflokksins, og á nógu var að taka.
Stormasamur kosningavetur virðist vera í vændum. Sjálfstæðisflokkurinn á nú undir högg að sækja eftir að í ljós kom að fylgi flokksins mælist í sögulegu lágmarki.
Fóru þeir Björn Leví og Teitur Björn yfir þessi mál og fleiri og skapaðist sérlega lífleg umræða þeirra á milli.
Ekki missa af Spursmálum hér á mbl.is alla föstudaga klukkan 14. Einnig eru þættir Spursmála aðgengilegir á Spotify og YouTube.