#36. - Rugby-rimma, remúlaðislys og umdeildur kjörþokki

Video Player is loading.
Current Time 0:00
Duration 0:00
Loaded: 0%
Stream Type LIVE
Remaining Time 0:00
 
1x
  • Chapters
  • descriptions off, selected
  • subtitles off, selected
    • Quality

    Sig­mund­ur Davíð Gunn­laugs­son, formaður Miðflokks­ins, var aðalviðmæl­andi Stef­áns Ein­ars Stef­áns­son­ar í nýj­asta þætti Spurs­mála. Áttu þeir at­hygl­is­verðar sam­ræður um lands­lag stjórn­mál­anna og ljóst að kosn­inga­bar­átt­an er nú þegar haf­in með óform­leg­um hætti. Í lok­in tóku sam­ræður þeirra óvænta stefnu þar sem rug­by-treyj­ur og remúlaði komu við sögu.

    Þátt­ur­inn var sýnd­ur hér á mbl.is fyrr í dag en upp­töku af þætt­in­um má nálg­ast í spil­ar­an­um hér að ofan og er hún öll­um aðgengi­leg. Einnig er hægt að hlusta og horfa á Spurs­mál á Spotify, YouTu­be og öll­um helstu streym­isveit­um.

    For­ingj­ar flokk­anna setja sig í stell­ing­ar

    Fylgi Miðflokks­ins hef­ur sjald­an eða aldrei mælst hærra en ný­leg­ar skoðanakann­an­ir gefa sterk­lega til kynna að fylgi flokks­ins fari nú með him­in­skaut­um en enn er óvíst hvenær til kosn­inga kem­ur. Að svo stöddu virðist svo vera að út­hald rík­is­stjórn­ar­inn­ar sé sleitu­laust þrátt fyr­ir að gustað hafi um rík­is­stjórn­ar­sam­starfið á kjör­tíma­bil­inu.

    For­ingj­ar stjórn­mála­flokk­anna hafa nú tekið sér stöðu á vett­vangi stjórn­mál­anna. Enda ekki seinna vænna því inn­an árs munu lands­menn ganga að kjör­borðinu á nýj­an leik og velja sér nýja for­ystu sem kann að hugn­ast land­an­um bet­ur.

    Lagðar voru ýms­ar spurn­ing­ar fyr­ir Sig­mund Davíð um stjórn­ar­sam­starfið og hvers sé að vænta í póli­tík­inni á kom­andi miss­er­um.

    Fjör­leg yf­ir­ferð á frétt­um vik­unn­ar

    Margt hef­ur dregið til tíðinda í vik­unni. Var það í hönd­um þeirra Ingu Sæ­land, for­manns Flokks fólks­ins, og Jón Gunn­ars­son­ar, þing­is­manns Sjálf­stæðis­flokks­ins og fyrr­ver­andi dóms­málaráðherra, að fara yfir helstu frétt­ir í líðandi viku. Mikið fjör fær­ðist í leik­ana þegar þessi tvö mættu í settið og rýndu helstu frétt­ir með sín­um eig­in skoðanagler­aug­um.

    Ekki missa af bein­skeyttri og líf­legri umræðu í Spurs­mál­um alla föstu­daga klukk­an 14 hér á mbl.is.

    Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, Inga Sæland og Jón Gunnarsson eru gestir …
    Sig­mund­ur Davíð Gunn­laugs­son, Inga Sæ­land og Jón Gunn­ars­son eru gest­ir Stef­áns Ein­ars Stef­áns­son­ar í Spurs­mál­um. Sam­sett mynd
    mbl.is