Mikill útflutningur frá Vestfjörðum

Drimla er hátæknivinnsla en uppsetningin og bygging hússins kostaði um …
Drimla er hátæknivinnsla en uppsetningin og bygging hússins kostaði um 4 milljarða. Ljósmynd/Arctic Fish

Geysi­leg af­köst eru hjá laxa­vinnsl­unni og slát­ur­hús­inu Drimlu í Bol­ung­ar­vík. Rúmu ári eft­ir að vinnsl­an var tek­in í gagnið eru þar iðulega unn­in 100 tonn á átta tíma vinnu­degi og rúm­lega það. Ný­lega var slegið met þegar 125 tonn af eld­islaxi fóru í gegn­um vinnsl­una á ein­um degi og tók það níu tíma.

Á rúmu ári hafa 3 millj­ón­ir laxa farið í gegn­um Drimlu en í sam­tali við Morg­un­blaðið seg­ir fram­kvæmda­stjór­inn Kristján Rún­ar Kristjáns­son að auka mætti af­köst­in um liðlega 30% með fjár­fest­ingu upp á 250 millj­ón­ir króna. Sé það til skoðunar hjá Arctic Fish eig­anda Drimlu en bygg­ing og upp­setn­ing slát­ur­húss­ins kostaði um 4 millj­arða.

Að sögn Kristjáns er beðið eft­ir leyfi til að flytja lax­inn frá Drimlu til Kína en lax­inn fer á markað bæði í Banda­ríkj­un­um, Evr­ópu og Asíu. Hol­land og Banda­rík­in eru að hans sögn stærstu markaðirn­ir. Siglt er með vör­una út frá Reykja­vík og Þor­láks­höfn en í um 5% til­fella er flogið með lax­inn út.

Kristján tel­ur það hjálpa eft­ir­spurn­inni að mjög hátt hlut­fall lax­anna sem koma slægðir frá Drimlu sé sett í fyrsta flokk og gæðin séu því mik­il.

„Eft­ir áföll­in í eld­inu í fyrra hef­ur eldið gengið mjög vel. Við erum með sér­stak­lega góðan fisk svo eft­ir er tekið. Mjög hátt hlut­fall lax­ins fer í fyrsta flokk eða um 97% frá ára­mót­um. Það er mjög hátt á heimsvísu og lax úr ein­staka kví­um fer upp í 99% í fyrsta flokk,“ seg­ir Kristján meðal ann­ars en hann starfaði áður við laxa­vinnslu í Nor­egi og hjá Mar­el áður en hann tók við fram­kvæmda­stjóra­stöðunni hjá Drimlu í Bol­ung­ar­vík. Þar vinna um 40 manns.

Lesa má meira um málið í Morg­un­blaðinu í dag. 

Nán­ar um málið
í Morg­un­blaðinu
Áskrif­end­ur:
Nán­ar um málið
í Morg­un­blaðinu
Áskrif­end­ur: