„Ég held að kannabis eigi eftir að koma mjög sterkt inn sem lyf fyrir konur“

Steinunn Ólína Þorsteinsdóttir leikkona og forsetaframbjóðandi.
Steinunn Ólína Þorsteinsdóttir leikkona og forsetaframbjóðandi.

„Þađ er löngu kominn tími til að við endurhugsum þetta og leyfum fullorðnu fólki ađ ráða því svolítið sjálft hvernig það linar sínar þjáningar,” segir Steinunn Ólína Þorsteinsdóttir, leikkona og forsetaframbjóðandi, í nýjasta þætti Hampkastsins. Hún hefur sjálf reynslu af notkun lyfjahamps í gegnum mann sinn, Stefán Karl Stefánsson, sem háði hetjulega baráttu við krabbamein en laut í lægra haldi árið 2018.

Steinunn Ólína segist mikinn áhuga hafa á kannabisplöntunni og segir hana vannýtta. 

„Lyfjaiðnađurinn hefur reynt ađ fletja út geðslag kvenna í stað þess ađ konur læri ađ vinna með þá ofurkrafta sem hormónakerfið okkar er. Ég held ađ kannabis eigi eftir ađ koma mjög sterkt inn sem lyf fyrir konur.”

Hún vísar til þess ađ í frumbyggjamenningu víđa sé plantan álitin kvennaplanta og hafi verið notuð til ađ lina þjáningar kvenna í fæðingu og við slæmum tíðaverkjum. Hún vonast til þess að heilbrigðisráðherra og starfsfólk úr heilbrigðisgeiranum sjái sér fært ađ mæta enda orðið mjög útbreitt ađ fólk noti lyfjahamp í lækningaskyni á ólöglegan hátt.

„Sjálf þekki ég margt fólk sem þarf ađ fara afdalaleiðir til þess að nota CBD með THC í lækningaskyni en það fær með því bestu bótina og þetta er ótækt. [...] Plantan er hrein snilld og gjöf til fólksins á jörðinni með alla sína eiginleika. Ég vona að þađ sé ekki langt að líða þar til lyfjahampur verđur löglegur undir einhvers konar eftirliti,“ segir Steinunn Ólína. 

Steinunn Ólína segir að hún hafi prófað að reykja kannabis …
Steinunn Ólína segir að hún hafi prófað að reykja kannabis en aldrei fundið sig í því. Áfengi hafi verið hennar vímugjafi en hún er hætt að drekka. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Hefđi getað svæft allan Vesturbæinn

Sjálf notar Steinunn Ólína ekki kannabis, segist hafa gert heiðarlega tilraun sem unglingur til ađ gerast hasshaus en ekki međ góðum árangri.

„Mér fannst víman aldrei þægileg en ég reykti með öðrum til ađ prófa. Þetta var aldrei mitt vímuefni. Ég lagðist aftur á móti í brennivínið af mikilli hörku,” segir hún og bætir við ađ hún sé löngu hætt ađ drekka áfengi. En þrátt fyrir ađ kannabis hafi ekki heillað hana hefur Steinunn Ólína góða reynslu af notkun kannabis því að eiginmaður hennar, Stefán Karl, greindist međ krabbamein árið 2016.

„Það var í raun fyrir tilviljun að hann fór ađ nota kannabis til að lina sínar þjáningar. Það kom þannig til ađ ýmsir ræktendur í Reykjavík fóru ađ færa honum olíu, svona hreina RSO, Rick Simpson olíu, og á tímabili barst okkur svo mikið magn af gjöfum að við hefðum líklega getað svæft allan Vesturbæinn ef ekki stór-Reykjavíkursvæðið. Og þá sá ég hvađ þetta lyf reyndist honum vel.”

Steinunn Ólína segir ađ þeim hafi veriđ fulljóst ađ lyfjahampurinn myndi ekki lækna hann af krabbameini en hafi engu ađ síđur reynst Stefáni Karli betur en ýmis önnur lyf.

„Seinna árið þegar það var orðið erfitt fyrir hann að halda holdum og halda niðri mat, því að það var mikil ógleði samhliða lyfjameðferðunum og af þeim lyfjum sem hann vegna veikinda sinna varð að taka, þá kom kannabis sterkt inn því að það sló áberandi og miklu betur á ógleði en öll ógleðilyfin og það virtist einnig gefa honum líkamlega betri ró auk þess að það varð til þess að hann hélt holdum. Kannabis er þekkt fyrir það að fólk verður sólgið í eitthvað matarkyns og hann var engin undantekning þar. Hann gat þrælað í sig ís á kvöldin og hélt því holdum miklu lengur, því annars var það honum mikil raun að setja eitthvað ofan i sig. Það var mikið inngrip inn í hans meltingarstarfsemi og kannabis gerði það að verkum að hann hafði meiri matarlyst.”

Ađspurð segir hún að Stefán Karl hafi engin neikvæđ viðbrögð fengið við því frá læknum eða úti í samfélaginu ađ nota kannabis enda sé ekki litiđ svo neikvætt á það þegar í hlut eiga sjúklingar sem virkilega þurfa á lyfjahampi ađ halda.

„Mörgum dugar CBD en aðrir þurfa THC og ég þekki fólk sem þjáðst hefur af krónískum ristilbólgum til dæmis og þar verður THC að vera með til að minnka bólgur og lina þjáningar. Þađ er í raun fáránlegt að hafa fólk á lyfjum sem veita ekki sömu líkn.”

Hægt er að hlusta á hlaðvarpsþáttinn hér fyrir neðan: 

mbl.is